Skinfaxi - 01.11.1938, Blaðsíða 18
98
SKINFAXI
Girðingin er til, svo að stofnkostnaðr yrði aðeins á-
burður og útsæði. —• Sandgræðslustjórinn er höfund-
ur þessarar uppástungu, svo að ekki er að efa, að vin-
samleg aðstoð hans fengist til framkvæmda.
— Ungmennafélögunum er „ekkert mannlegt óvið-
komandi“. En landvörn og sköpun gróðurlands, eins
og sandgræðslan er, idýtur að vera þeim sérlega kært
og nákomið viðfangsefni.
Ungmennafélag Stokkseyrar
á Stokkseyri er rúmlega 30 úra, stofna'ð 15. marz 1908, og
var athafnamikið og starfaði í góðri einingu.
Eldri og yngri félagsmenn þess, þeir, sem nú eru í þvi og
þeir, sem hafa verið þar starfandi, héldu sameiginlegan fund
á Stokkseyri sunnudaginn 16. október síðastl. Sátu fundinn
27 eldri félagar úr Reykjavik, Hafnarfirði og Keflavík, auk
þeirra, sem eru búsettir austanfjalls, en um 130 voru alls
á fundinum.
Það vakti mikla ánægju, að svo margir, sem eiga æsku-
stöðvar á Stokkseyri, skyldu koma í hópferð til þess að heim-
sækja uppeldissystkini og gamla samstarfsfélaga og lifa upp
einn dag gamla daga. Skemmtifundur þessi var að öllu leyti
eins og þeir voru fyrir 15—20 órum, og í engu breytt með
umræður og skemmtiatriði, og varð þelta öllum þátttakend-
um til ógleymanlegrar ánægju, af því að dvalið var á æsku-
stöðvunum.
Þeir gestir eru í hverri sveit til mestrar ánægju, sem hafa
dvalið þar æsku- og þroskaárin; þar eru þeirra leiksystkini.
Á þessari samkomu rifjuðu margir upp gamla daga, sem ekki
höfðu sézt í 15—20 ár. Slíkir fundir gleymast ekki á næstu
árum.
Ungmennafélögum, sem hafa verið starfandi, er flestum
kært gamla félagið sitt. Slíkar hópferðir sem þessi koma nýju
fjöri í þá, sem nú eru starfandi félagar, um leið og þeir end-
urnýja samband við þá, sem enn dvelja á æskustöðvunum,
báðum aðilum til ógleymanlegrar ánægju.
Þórður Jónsson.