Skinfaxi - 01.11.1938, Blaðsíða 50
130
SKINFAXI
— ríkin, f. o. fr. í þágu lýðræðisins sjálfs, endurskoði
afstöðu sina til ýmissa fyrirbrigða í einræðisríkjunum,
meti þau án hlutdrægni, og liagnýti sér ýmsar niður-
stöður þeirra og beiti þeim síðan til eflingar og viðhalds
hinni lýðfrjálsu stjórnarskipun í samkeppninni við ein-
ræðið. —-
IV.
Bretar hafa um langt skeið staðið meðal fremstu
þjóða um iðkanir íþrótta og almennan áhuga á ibrótta-
málum. Brezkir stjórnmálamenn hafa oft látið sér þau
ummæli um munn fara, að brezka heimsveldið ætti
lilveru sína að verulegu leyti að þakka íþróttaástundun
þjóðarinnar. En starfsemi þessi liefir að verulegu leyti
hvílt á einkaframtaki áhugamanna og félaga. Bikis-
valdið hefir eigi haft þar forystuna, og verið um þessi
efni hlutlausara og afskiplaminnaenvíðaannarstaðar.
En Bretar uggðu eigi að sér. Beynsla striðsins mikla,
og nú á allra síðustu árum einnig aðgerðirannarraþjóða
i þessum efnum, einkum fyrrnefndra stórvelda, svo og
Jajjana og Amerikumanna, hafa vakið þá og þeir gert
sér þess fulla grein, að á sviði líkamsmenntar hafa aðr-
ar þjóðir skotið þeim aftur fyrir sig.
Bretum hefir verið þetta áhyggjuefni mikið. En trúir
þjóðskipulagi sínu, lund og erfðavenjum vilja þeir leysa
vandamálið á lýðræðisgrundvelli, en eigi með valdboði
eða þvingun. Og á þessum grundvelli hvílir hin nýja
hrezka i þró t ta-„hreyfi ng“.
Að uppruna er „hreyfing“ þessi vakin af stór-póli-
tsskri nauðsyn.
Að formi og skipun er hún þrauthugsuð allsherjar-
sókn til hætts líkamsuppeldis þjóðarinnar.
I framkvæmd styðst hún við allar greinir áróðurs-
tækni nútímans.
En forustan er í höndum ríkisvaldsins.