Skinfaxi - 01.11.1938, Síða 67
SKINFAXI
147
ekki gangi allt að óskum í fyrstu. Munið eftir, að hafa
reikningshaldið í lagi og senda mér stutt yfirlit yfir
starf ykkar og hvað þið hafið upp skorið.
Hvanneyri, 20. september 1938.
Iíannveig Þorsteinsdóttir:
Prjónlessýnlngln og tilgangnr hennár.
Þær Anna Ásmundsdóttir, Halldóra Bjarnadóttir og Laufey
Vilhjálmsdóttir hafa tekið sér fyrir hendur að koma hér upp
prjónlessýningu innan skamms, og hefir til þess fengizt styrk-
ur frá ríkinu og einnig frá Landssambandi Heimilisiðnaðar-
félaganna. Tilgangur þessarar sýningar er svo þýðingarmikill
og merkilegur, að sjátfsagt er að sem flestir fylgist með henni.
Sennilegt er, að hún verði byrjuð um það leyti, sem þetta
hefti Skinfaxa keinur fil ungmennafélaga, og nær þetta grein-
arkorn því ekki nógu snemma til jiess að vekja athygli á
sýningunni sjálfri og undirbúningi hennar, en lnin er byrjun
að miklu og merkilegu starfi fyrir þjóðina, og því er árang-
ur sá, sem lnin kann að gefa, svo athygliverður.
Hér á landi var sá skilningur ríkjandi meðal almennings,
að islenzka ullin sé ekki góð vara, og gæti ekki orðið það,
og er sá skilningur sennilega sprottinn frá þeim tima, þegar
hér þekktist ekki vöruvöndun á neinu sviði. Á síðustu ár-
um hefir þetta þó mikið breytzt, fyrir forgöngu ýmsra góðra
manna og kvenna, þeklcingu á meðferð ullar og bands, og
vegna þess, að á þessurn erfiðu tínnnn hefir þjóðin koinizt
að raun um, að hún verður að búa sem mest að sinu.
Konur þær, sem standa að prjónlessýningunni, telja sig
liafa fullkomnar sannanir fyrir því, að gera megi islenzkt
prjónles' ekki einasta að nothæfri vöru innanlands, heldur og
að útflutningsvöru svo um muni, ef rétt er að forið. Þær
telja, að það, sem vanlar til þess, sé skipulag á sölunni, og
að skipulagninguna verði að byrja á því fyrst og fremst, að
gera ákveðnar kröfur til þeirrar vöru, sem á að selja. Að
varan verði ákvæðisvara, og er með því átt við, að fram-
leiddar séu eingöngu ákveðnar tegundir af vissum, tölusett-
um stærðum, og eftir ákveðnum fyrirmyndum. Þetta er það,
sem tiðkast um sölu á öllum slíkum varningi, og liggur í
auguni uppi, að þessa leið verður að fara. Prjónlessýningin
10*