Skinfaxi - 01.11.1938, Síða 75
SKINFAXI
155
Eins og kunnugt er, lióf annar félagsskapur, bókmennta-
félagið „Mál og menning", útgáfu úrvalsbóka fyrir alþýðu
síðastl. ár. Fá félagsmenn árbækur þess fyrir kr. 10.00. Verða
það fimm bækur, og auk þess tímarit, fjögur hefti. Hefir fé-
Iag þetta farið mjög glæsilega af stað og náð mikilli útbreiðslu.
Formaður þess er Kristinn E. Andrésson magister.
Ef útgáfufyrirtæki þessi ná að þrífast og verða ekki hvort
fyrir öðru, ættu þau að geta auðgað bókmenntir vorar svo
að um muni á komandi árum, og það af úrvalsbókum, sem
fátækur almenningur ræður við að veita sér. A. S.
Guðmundur Friðjónsson: Úti á víðavangi.
Frásagnir um dýr. Bókav. Guðm. Gamalíelssonar.
Rvik 1938.
Þessi bók ætti að vera kærkomin öllum þeim, sem unna
islenzkri náttúru og islenzku dýralífi. Sögurnar eru hvort-
tveggj í senn: lofsöngur til hinnar lifandi náttúru og vold-
ug krafa um verndun dýranna, bæði fugla og ferfætlinga.
í sumum sögunum eru harðar ádeilur á þá, sem gerast friðar-
spillar í dýraríkinu. Sex fyrstu sögurnar falla mér bezt í
geð, þær eru gamlir kuningjar og ógleymanlegir, t. d. Álft-
irnar á Sandvatni, Grænhöfðaöndin, Álftaveiðin, Konungur-
inn i Stapa og fleiri. Sjaldan hefir penni Guðm. Friðjóns-
sonar farið á meiri kostum og er þó margt með ágælum i
rithöfundarferli -Guðmundar. Ég vildi með þessum fáu línum
benda á ágæta bók, sem ungir og gamlir ættu að lesa.
G. M. M a g n ú s s.
í Skíðabókinni, sem
getið er hér að framan,
eru myndir af skiða-
skálum á íslandi, nema
skála Umf. í Önundar-
firði og Dýrafirði, á
Gemlufallsheiði. Hér er
mynd af honum.
Skíðaskáli á Gemlufallsheiði.