Skinfaxi - 01.04.1940, Qupperneq 13
SKINFAXI
13
um hagsmuni sína. Meðan aðilar þessir hafa eigi myndað slík
samtök, skal íþróttanefnd skipa þriggja manna stjórnarnefnd
i héraði hverju. Skal einn nefndarijianna skipaður samkvæmt
tilnefningu stjórnar Í.S.Í. og annar samkvæmt tilnefningu
stjórnar U.M.F.Í. og hinn þriðji samkvæmt tilnefningu fræðslu-
málastjórnar. Nefndin skiptir sjálf með sér verkum. Formaður
er umboðsmaður íþróttanefndar og íþróttafulltrúa í héraði sínu.
Eigi þiggur hann laun fyrir það starf. Þá er héraðssamtök
íþróttaaðila hafa myndazt, tekur stjórn þeirra við starfi nefnd-
arinnar.
2tí. gr. Til þess að félög séu viðurkennd til styrkveitinga
samkvæmt lögum þessum, verða þau að uppfylla eftirfarandi
skilyrði:
1. Inntaka manna í þau sé ekki bundin skilyrðum um trúar-
eða stjórnmálaskoðanir.
2. AlJir félagsmenn séu skyldir að greiða iðgjöld í sjóði fé-
laganna.
3. Félögin séu í Í.S.Í. eða U.M.F.Í., greiði þeim tilskilin gjöld,
sendi árlega fyrirskipaðar skýrslur og séu a. m. k. tveggja
ára gömul.
4. Félögin hafi lækniseftirlit með íþróttamönnum sinum, eft-
ir því sem við verður komið.
6. kafli. Yms ákvæði.
27. gr. Skylt er bæjar-, sveitar- og sýslufélögum að lcggja
til endurgjaldslaust hentug lönd og lóðir undir íþróttamann-
virki, sem styrkt eru úr íþróttasjóði, eða iþróttanefnd viður-
kennir. Heimilt er að taka land til þessa eignarnámi, ef þörf
krefur.
28. gr. Ef félag eða skóli, sem fengið liefur styrk úr rík-
issjóði eða iþróttasjóði til mannvirkja eða iþróttatækja, leggst
niður, skulu þessar eignir þess renna til íþróttasjóðs, nema
öðruvísi sé ákveðið í samþykktum eða reglugerðum. Iþrótta-
nefnd sér um, að ])ær konii að notum til íþróttaiðkana á þeim
stað, sem þær eru, eftir því sem ástæður leyfa.
29. gr. Viðurkenndir skólar og íþróttafélög skulu hafa for-
gangsrétt að notkun íþróttamannvirkja og tækja, sem þegar
eru til í landinu, eða byggð kunna að verða, að því leyti
sem eigendur nota þau ekki til íþróttaiðkana, enda sé greitt
fyrir það sanngjarnt verð.
30. gr. Ágreiningi, sem rísa kann út af skilningi á lögum
þessum eða framkvæmdum þeirra, skal skjóta til úrskurðar