Skinfaxi - 01.04.1940, Qupperneq 7
•SKINFAXI
7
bókmenntasmekk samtíðarinnar leiða sig á villigötur
í þeim efnum. Hann er, eins og Guðmundur Friðjónsson
komst snilldarlega að orði um hann, höfundur, „sem
aldrei hefir horið á borð fyrir sálirnar flautir né
froðu; og ávallt hefir hann borið virðingu fyrir skáld-
gyðjunni, vandað ávallt til skáldlegra liugsana sinna
og klætt þær í búning úr vönduðu og nærskornu efni“.
Með stórbrotinni og lislrænni ljóðagerð sinni liefir
Einar Benediktsson gefið jákvætt og varanlegt svar við
spurningunni, sem liann spyr óbeinlínis í lokalinunum
1 afbragðskvæðinu „Svanur“:
Er nokkur œðri aðalJ hér á jörð,
en eiga sjón út yfir hringinn þröngva
og vekja, knýja hópsins veiku hjörð
til hærra lífs — til ódauðlegra söngva.
íþróttalög.
1. kafli. Um stjórn íþróttamála.
1. gr. í lögum jjessum merkja íþróttir hverskonar líkams-
æfingar, er stefna að þvi að auka heilbrigði manna og hreysti,
likamsfegurð, vinnuþrek og táp.
2. gr. Fræðslumálastjórnin hefur yfirumsjón allra iþrótta-
mála að því leyti, er rikið lætur þau til sín taka. Til aðstoðar
fræðslumálastjórninni um stjórn og framkvæmd íþróttamála
er íþróttafulltrúi og íþróttanefnd.
3. gr. íþróttafulltrúi skal hafa alhliða þekkingu um íþrótta-
mál og auk þess þekkingu á sviði almennra uppeldismála,
•enda starfar hann í sambandi við fræðslumálastjórn, eftir
nánari ákvæðum, sem kennslumálaráðherra setur. Hann skal
ráðinn af fræðslumálastjórn til þriggja ára í senn, að fengn-
um tillögum íþróttanefndar, og greiðast laun hans úr ríkissjóði.
íþróttafulltrúi skal hafa á hendi þessi störf:
1. Að hafa umsjón með iþróttastarfsemi í skólum.
'2. Að vinna að úlhreiðshi og eflingu íþrótta i landinu.
íi. Að gera tillögur um framkvæmdir til eflingar íþróttum og
hafa eftirlit með slikum framkvæmdum.