Skinfaxi - 01.04.1940, Side 20
20
SKINFAXI
þrjátíu ár, sem þau liafa slarfað samtímis. En verkum
er þannig skipt með þeim, að livorugt þeirra getur kom-
ið fram í þessu efni fyrir hins liönd. I. S. 1. fer einkum
með íþróltastarfsemi í kaupstöðum og þétthýli, og með
allsherjarkappleiki og heildarstjórn íþróttamála. U. M.
F. I. liefir aftur á móti með liöndum meginliluta íþrótta-
starfseminnar i sveitum og dreifbýli, þar sem öll að-
staða er örðugust. — Þriðji nefndarmaðurinn gætir
þar hagsmuna ríkisvaldsins og skólanna. En þar sem
íþróttafræðsla og iþróttatamning skólanna er sú undir-
staða, sem íþróUastarfsemi félaganna er reist á, getur
varla verið liætta á, að hlutur skólanna verði fyrir horð
borinn í nefndinni, þó að hinn eiginlegi fulltrúi þeirra
sé þar i minnihluta.
II. kafli. Stofnun iþróttasjóðs ælti að vera mjög þýð-
ingarmikið atriði fyrir íþróttastarfsemina, og veltur þó
mjög á því, að sjóðurinn fái öruggan og arðbæran tekju-
stofn. Hefir íþróttamálanefndin ýmsar liugmyndir um
það efni, en telur þá tíma, sem nú liða, ekki heppilega
til að koma fram með þær. En undir því er gagnsemi
íþróttalaganna vissulega að mjög verulegu leyti komin,
að íþróttasjóður fái rífleg l'járráð.
Fé úr íþróttasjóði hlýtur fyrst og fremst að fara til
þess, að bæta aðstöðu og möguleika þjóðárinnar til
íþróttaiðkana með mannvirkjum, svo sem íþróttavöll-
um, sundlaugum, skíðabrautum o. s. frv. Þessir hlutir
kosta yfirleitt meira fé en svo, að einstök íþróltafélög
eða skólar séu fær um að koma þeim upp á eigin spýtur.
En slík íþróttamannvirki eru oft meginskilyrði þess,
að íþróttir verði iðkaðar eins og vera ber.
Lögin ætlast til þess, að á stöðum, þar sem íþrótta-
mannvirki eru gerð, sé sá áhugi fyrir liendi hjá iþrótta-
félögum, skólum og einstaklingum, að þau vilji leggja
og geti lagt eitlhvað verulegt af mörkum lil fram-
kvæmdarinnar. Er ]>að einkum almenn vinna, sem ])css-
ir aðilar hafa ráð á að leggja til. Þess vegna gera lögin