Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1940, Síða 24

Skinfaxi - 01.04.1940, Síða 24
24 SKINFAXI íl)i'óttamiðstöðvar til niáms og keppni, sem myndast liljóta eða eru þegar myndaðar. Þannig mundu t. d. Arnes- og Rangárvallasýsla standa saman um íþrótta- miðstöð og mót að Þjórsártúni, Borgarfjarðar- og Mýra- sýsla að Ferjukoti, Dalasýsla, austurhluti Barðastrand- arsýslu og miðbik Strandasýslu að Laugum, vestur- iiluti Barðastrandarsýslu og Vestur-ísafjarðarsýsla að Núpi, Norður-ísafjarðarsýsla og nyrztu sveitir Stranda- sýslu að Reykjanesi, syðsti liluti Strandasýslu, og Vestur- Húnavatnssýsla að Reykjaskóla o. s. frv. — Umf. hafa þegar starfað í héraðssamböndum um langt skeið, og I. S. I. hyggst nú að fara að dæmi þeirra. 25. gr. íþrótta- laganna er ætlað að greiða fyrir samvinnu allra iþrótta- aðila hvers héraðs, félaga, skóla o. s. frv., og gera auð- veldara að koma upp íþróttamiðstöðvum með nauð- synlegum mannvirkjum. 26. gr. leggur nokkrar sjálfsagðar kvaðir á einstök félög, til þess að þau geti notið stýrks samkv. lögunum. Félag getur ekki átt skilinn styrk til íþróttastarfsemi, nema félagsmenn leggi eitthvað af mörkum til hennar sjálfir. Verður að gera ráð fyrir, undir öllum venjuleg- um kringumstæðum, að iðgjöld félagsmanna greiði all- an almennan reksturskostnað félaganna. Þá er eðlilegt að heimta, að félög séu i öðru hvoru þeirra landssam- banda, sem njóta viðurkenningar laganna, og ræki þar skyldur sínar. Ákvæðið um tveggja ára lágmarks- aldur félags er setl til þess að fyrirbyggja, að félag, sem þýtur upp án þess að eiga lifsgetu til frambúðar, geti hrifsað fé úr íþróttasjóði. VI. kafli. Ákvæði 27. gr. um lönd og lóðir undir íþróttamannvirki hlýtur að vera Umf. kærkomið, og einnig ákvæði 29. gr. um forgangsrétt að notkun iþrótta- mannvirkja. Skal tækifærið notað til að benda á þessi ákvæði. En i VI. kafla er ekkert, sem skýringa þarf við.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.