Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1940, Page 38

Skinfaxi - 01.04.1940, Page 38
38 SKINFAXI og yndislegt, finna nálægð liins guðdómlega. Þið inun- uð finna það,.cf þið bara hugsið um það og athugið líf- ið, að slíkar göfugar nautnir eru hýsna algengar og hversdagslegar. Það er vissulega þroskavottur, að finna fegurðina sem víðast og geta hrifizt af sem flestu. Bisk- upnum var það sakramenti, að sjá vindinn hylgja græn- gresi vallarins. Slíkt er hversdagsleg sjón. Vist eru þeir margir, sem hrífast af henni, en aðrir eru sljóir fyrir sliku. Eitt af góðskáldum Svia, Verner v. Heidenstam, iiefur orl smákvæði, sem bróðir minn jjýddi svo: Ég leitaði hnettinum hálfum á að lilut, sem dýrstan má kalla, svo fagra ég fann þá alla að fegurstan engan ég sá. Ei fjártjón mig snauðan getur gert ef gáfuna missi eg cigi að hug minn það hrifa megi, sem hinum finnst lítilsvert. Þella er andleg auðlegð, að eiga sér nautnalindir i kringum sig, finna lífsfegurð, skynja lífsverðmæti. Það er auðugur andi, sem finnur fegurð og snilld í bókmennl- um, tónlist, landslagi, listaverkum, jarðargróðri, mann- dómslegu starfi o. s. frv. Þetta eiga ungmennafélögin að benda fólki sínu á. Þau eiga að sýna því fegurð lífsins og gera það næmt fyrir iienni. Því þroskaðri sem fegurðartilfinning mannsins er, — því næmari skilning sem hann liefir á fegurð yfirleitt, því sárar svíður lionum allt ósamræmi og öll fegurðarspjöll, og þvi ríkari verður löngun hans til að ráða þar bætur á, ef viljalíf hans er þroskað i samræmi við annað. Manngildi og lífsgleði fólksins stendur í nánu sambandi við það, sem athygli þess bein- ist að á æskuárunum. Því geta ungmennafélögin unnið stórvirki með þvi, að leiða aihyglina. Lítum t. d. á hvaða

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.