Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1940, Page 46

Skinfaxi - 01.04.1940, Page 46
46 SIÍINFAXI grafa nægilega margar holur i'yrir næsta árs plöntun. 11. Lagfærið skógarplöntur frá eldri gróoursetningu, ef með þarf. 12. LeggiS gras])i)ku ofan á moldina, kringum hverja plöntu, til þess að koma í veg fyrir, íjð frostið lyfti henni upp. Látið grassvörðinn snúa niður. Ef engin grastorfa er við hendina, má láta lyng, mosa eða smámöl kringum plöntuna, eða eitthvað annað, sem er til hlífðar. II. VOHVINNA. Gróðursetning. 1. Gróðursetjið trjáplöntúr að vorinu, helzt st)-ax eftir að klaka leysir úr jörðu. 2. Plöntur, sem ætlaðar eru til gróðursetningar, verða að sæta góðri meðferð. Taka skyldi um 100 plöntur frá að- alforðanum og búa uni þær í bindi. Leggja vel blaútan mosa utan um ræturnar, vefja síðan votri strigadulu lauslega þar utan yfir. Gott er að dýfa svo inndinu ofan í vatn. Plönturnar eru svo dregnar úr hindinu jafnóðum og plant- að er, en varazt að slíta ræt- urnar nm leið. 3. Notið skóflu við gróður- setninguna. Hún er öllu betri en plöntuhaki. 4. Stingið skóflunni lóðrétt ofan i miðja holuna og mokið moldinni frá öðrum megin. Leggið plöntuna upp að stall- initm eftir skóflufarið og greiðið vel úr rótunum. Þær mega ekki bögglast. Sópið moldinni að rótunum og þjappið henni vel að þeim. Fyllið holuna og þrýstið mold- inni vel niður, kringum plönt- una, með hemli eða fæti. 5. Látið plöntuna standa beint upp og setjið hana ekki dýpra ofan í moldina en hún hefur staðið áður. (i. Ef moldin er mjög þurr, er gott að vökva kringum plöntuna, þegar búið er að gróðursetja. Bezt er að gróð- ursetja í votviðri. 7. Sé ekki lækifæri að skýla plöntunum á haustin (sbr. I., 12. gr.), er rétt að gera það jafnóðum og planl- að er. 8. í mögrum jarðvegi má láta ofurlítinn gamlan áburð kringum birki- og reyniplönt- ur, þó ekki næst rótunum, heldur yzt i lioluna. Látið engan áburð kringum furu- eða greniplöntur. 9. Ef holur eru gerðar jafnóðum og plantað er og plöntuhaki notaður, er gras- rótin flegin ofan af þar, sem holan á' að vera. Moldinni er síðan rótað upp. Hún er mul- in vel um leið. Gæta verður þess, að hafa holuna nógu víða og djúpa fyrir ræturn- ar. Plantan er ])á lögð upp að lóðrétta holustallinum og smágerðustu moldinni sópað fyrst að rótunum og þrýst vel að þeim. Hæpið er, að gróð-

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.