Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1940, Page 48

Skinfaxi - 01.04.1940, Page 48
48 SKINFAXL og fræiö sjálft. Þrýstið síöan með fjöl ofan á moldina, eða þjai>pið lienni vel niður með fætinum. 10. Fræi má einnig sá í rákir. Ýtið járnstöng lárétt undir grasrótina. Lyftið síðan stönginni upp, svo að gras- rótin slitni. Dreifið fræinu strjált i rákina, sem myndast og ])jappið lienni vel saman með fætinum. Gerið rákir um þveran halla, ef landslagi er svo liáttað, en ekki beint upp og ofan. 11. Sáið ékki trjáfræi þar, sem grasvöxtur er mikill, eða mjög þéttur. Fræið getur fún- að, eða ungplönturnar kafnað jafnóðum og þær byrja að vaxa. Vel má sá trjáfræi i stórgrýtt land, ef nægur mold- arjarðvegur er á milli stein- anna. 12. Notið ekki áburð á blettinn, sem trjáfræi er sáð í. Hann eykur grasvöxtinn, sem tekur næringu frá ung- viðnum. IV. SAMVINNUTRJÁKÆKT. Tillögur. 1. Skólar, æðri sem lægri, ungmennafélög og allskonar annar félagsskapur, karla og kvenna við sjó og til sveita, ættu að stofna til samvinnu- trjáræktar úti á viðavangi og útvega sér lanrl i því skyni á hentugum stað. Skólar og félög, seni eiga heima i sama byggðarlagi, gætu verið i samlögum um eitt trjáræktar- svæði. 2. Bæjar- og sveitarfélög, sem eiga mikið landrými, ein- stakir jarðeigendur og rikið, gætu sér að skaðlausu lagt til land undir gróðursetning trjá- plantna, endurgjaldslaust að minnsta kosti í 50 ár. Þegar trjáræktarláridið færi að gefa arð, mætti greiða vissan hundraðshluta af honum til landeiganda. Stærð landsins færi eftir tölu þeirra manna, sem ætla mætti að tækju þátt i samvinnutrjáræktinni á hverjum stað. Skyldi þó ekki vera minna en allt að 20 hekt- arar, eða svo að það rúmaði minnst 100000 gróðursettar trjáplöntur. 3. Bezt væri að geta feng- ið lánd, sem að einhverju leyti er sjálfgirt frá náttúrunnar hendi, svo sem af ám, stöðu- vötnum, sjó eða öðru tryggu aðhaldi. Það drægi úr girð- ingarkostnaði. 4. Þegar land væri fengið og búið að girða það, kæmi að þvi, að útvega trjáræktar- verkfæri. Þau yrðu einkum skóflur og plöntuhakar. Áhöld, sem ekki yrðu noluð til ann- ars en trjáræktar á landinu, ættu helzt að geymást þar í læstum skúr. Gæti komið til mála, ef svo hagaði til, að lít- ill og snolur sumarbústaður yrði reistur hjá landinu, handa þeim, sem hefðu eftir- lit með trjáræktinni. 5. Reglur eða lög skyldu

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.