Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1940, Blaðsíða 52

Skinfaxi - 01.04.1940, Blaðsíða 52
52 SIÍINFAXI á málfunduin eða við verkleg siörf. Hann var manna fund- vísastur á nýjar leiðir, ný viðfangsefni ungmennafélögum tii handa og við þeirra hæfi. Hvatamaður var hann, margra þeirra verklegu framkvæmda, sem félagið hafði með höndum, og ráðunautur yngri manna um það, hvernig haga skyldi verkum. Aldrei var Magnús glaðari en við slík störf, með hópi æskumanna og æskukvenna í verki með sér! Við, sem áttum því láni að fagna, að eiga Magnús fyrir félaga og starfsbróð- ur, ininnumst hans sérstaklega frá þeim stundum. Magnús var vel máli farinn; oft léttur og fyndinn i ræðum, svo að almenna gleði vakti þeim, er á hlýddu, en hinsvegar þungorður, ef því var að skipta, og honum þótti það betur við eiga. Magnús var ókvæntur og barnlaus alla æfi. En mjög vakti hann á sér eftirtekt fyrir það, live barngóður hann var, enda urðu börnin mjög handgengin honum þar, sem hann var samvistum með þeim. Ekki af því, að hann væri sérstaklega með glens við þau eða tæki þátt í leikum þeirra, heldur sök- úm þess, að hann virtist skilja sálarlíf þeirra vel og kunna mörgum öðrum fremur að haga við þau samræðum eftir því. Hann mat mikils fróðleikslöngun þeirra og var óþreytandi á að svara spurningum þeim, er þau báru fram, um það, sem þau vildu vita skil á. — Ef til vill hefir það verið þessi þátt- ur í skapgerð hans, sem gerði hann að svo góðum ungmenna- lélaga, sem raun varð á. Magnús kynntist prýðilega öllum þeim, sem nokkur veru- íeg kynni höfðu af honum, enda naut hann þess af nágrönn- um sínum þá er heilsa hans var að þrotum komin. — Hann andaðist að Stóra-Kálfalæk 14. júlí s. 1., þá fullra 60 ára að aldri. Sigurður Einarsson. * Sigmundur Guðmundsson kennari andaðist í sjúkrahúsi i Reykjavík 27. des. 1939. Banamein hans var blóðeitrun. Hann var fæddur í Stykkishólmi 8. nóv. 1911, því aðeins 28 ára að aldri. Nám hafði Sigmundur stundað við alþýðuskólana að Hvítár- bakka og Laugarvatni, og einnig í kennaraskólanum, en jiaðan lauk hann prófi vórið 1933 með góðri einkunn. Siðan stundaði hann framhaldsnám i fimleikum, að Laugarvatni. íþróttakennari var hann við Miðbæjarskólann í Reykjavík síðustu árin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.