Skinfaxi - 01.04.1969, Blaðsíða 20
og fremst að kenna byrjendum. Nú
þyrftu þessir þjálfarar að fara út á
meðal hinna yngri og leiðbeina þeim og
ákveða svo, hvort þeir hafi ekki hug
á að fara á námskeið 2. stigs. Að lok-
um lét Guðmundur í ljós þá eindregnu
skoðun, að engin von væri til þess að
frjálsar íþróttir hæfust til vegs á ný
hér á landi fyrr en búið væri að koma
upp stórum hópi menntaðra leiðbein-
enda. Stigakerfi þjálfaranámskeiðanna
væri einmitt ágæt leið til þess.
12 þjálfarar
12 þjálfarar útskrifuðust af námskeið-
inu. Þeir eru þessir:
Albert Eymundsson,
Höfn Hornafirði.
Ari Stefánsson,
Hólmavík, Strandasýslu.
Jóhann P. Hansson,
Seyðisfirði.
Jónas Traustason,
Vestmannaeyjum.
Höskuldur Höskuldsson,
Þingeyri.
Marteinn Sigurgeirsson,
Selfossi, Arnessýslu.
Pálmi Bjamason,
Árbakka, Landssveit, Rangárv.s.
Ragnheiður Þorgrímsdóttir,
Kúludalsá, Borgarfirði
Regína Höskuldsdóttir,
Þingeyri.
Sigurður Jónsson,
Selfossi, Ámessýslu.
Svanborg Siggeirsdóttir,
Baugstöðum, Árnessýslu
Þórólfur Þórlindsson,
Eskifirði.
Hin ágæta íþróttakona Þuríður Jónsdóttir,
HSK, hlaut hinn veglega afreksbikar Sam-
vinnutrygginga sem fræknasti íþróttamaður
13. Landsmótsins. Til grundvallar voru lagðar
skrár og útreikn. um alla keppendur, er hlutu
mótsstig. Þuríður var önnur í 100 m. hlaupi
og í langstökki og hún var í boðhlaupssveit
HSK, sem vann 4x100 m boðhlaup. Þá sigr-
aði hún í 100 m bringusundi og var í sveit
HSK, sem sigraði í 4x50 m boðsundi. Einnig
var hún 10. í spjótkasti og þátttakandi var
hún í forkeppninni í handknattleik. — Þuríð-
ur hlaut afreksbikarinn einnig fyrir Lands-
mótið á Laugarvatni 1965 og sýnir þetta frá-
bæran íþróttaferil. Myndin að ofan var tekin
af Þuríði, er hún tók við bikarnum fyrir
skömmu.
22
SKINFAXI