Skinfaxi - 01.04.1969, Blaðsíða 24
Á Landsmótunum kemur
í ljós árangurinn af í-
þróttastarfi og annari
menningarstarfsemi ung-
mennafélaganna. Myndin
er af Laugarvatni, þegar
12. Landsmót UMFÍ var
haldið.
ar, enda vel til þeirra vandað um dag-
skrárefni og alla framkvæmd. Ung-
mennafélögin hafa með þessu starfi
sínu viljað gera tilraun til þess að
koma á samkomum með menningar-
sniði fyrir fólk á öllum aldri, þar sem
vín væri ekki haft um hönd, jafnframt
því að skapa sér nokkrar tekjur til
hins margháttaða félagsstarfs.
Það gleðilega hefur gerzt, að tilraun
þessi hefir heppnast með ágætum, og
enn einu sinni hafa ungmennafélögin
sýnt það í verki að þau gegna for-
ystuhlutverki í félags- og skemmtana-
lífi fólksins um land allt. Innan vé-
banda ungmennafélaganna eru þeir
starfskraftar eldri sem yngri, sem hafa
reynslu og þekkingu til þess að fram-
kvæma svona hluti.
Fjármálin eru svo ef til vill mál mál-
anna, og enn sem fyrr ofarlega á baugi
hjá félögunum. Hið aukna félagsstarf
krefst sífellt meira fjármagns. Hjá hér-
aðssamböndunum og jafnvel einstaka
félögum er starfsemin orðin svo um-
fangsmikil og margþætt, að ekki verð-
ur lengur hjá því komist að ráða laun-
aða starfskrafta, auk þess sem miklum
f jármunum er varið í þjálfun og ferða-
lög íþróttafólks. — Fjárhagsleg aðstoð
hins opinbera við UMFl í dag er næsta
fátækleg þegar litið er yfir starfsvett-
anginn, þótt smávægileg leiðrétting
hafi þar á orðið á síðustu fjárlögum.
Þakkarverður er stuðningur margra
sveitarfélaga, sýslusjóða, félagasam-
taka og einstaklinga við ungmenna-
félög um land allt.
Enn sem fyrr verða ungmennafélög-
in þó mest að treysta á þegnskap og
fórnarlund einstaklinganna í sínu
margþætta starfi.
26
SKINFAXI