Skinfaxi - 01.04.1969, Blaðsíða 41
Hver einstaklingur
komi sér upp varasjóði
þreks og úthalds. í
þessum tilgangi er
hlaupið og skokkað úti
á víðavangi.
og ég hefi þýtt eftir merkingu orðanna
og nefni heilsuþjálfun.
Þessi þjálfun hefur það að markmiði,
og á það er lögð afar mikil áherzla, að
skapa þjóðinni allri, ekki aðeins ein-
stökum afreksmönnum heldur öllum
almenningi, meira úthald — þol — en
hver einstaklingur hefur þörf fyrir við
dagleg störf sín, þegar þau eru hvað
erfiðust. Með öðrum orðum, að hver
einstaklingur komi sér upp varasjóði
þreks og úthalds, svo daglegt starf geti
ætíð farið honum létt úr hendi, enda
þótt það óvænt verði miklum mun erf-
iðara en venjulega.
Þetta er á öllum Norðurlöndum nefnt
sama nafninu og kallað ,,kondition“ —
þol.
Ráðið til að afla sér þessa þols, sem
sífellt er þar hamrað á, og allir eru
sannfærðir um að sé öllum til góðs,
sem eftir því fara, er, að fara út eftir
vinnu og hreyfa sig — ,,motionera“.
Að áróður þessi beri árangur má
glögglega sjá dag hvern, því fólk fjöl-
mennir út í skóginn og náttúruna til
þess að fara þar sinn æfingahring, mis-
jafnan langan og erfiðan eins og ætíð,
þegar margir eru að. Það er gaman að
vera viðstaddur, þegar þetta fólk kem-
ur til baka eftir langan eða skamman
tíma mjög misjafnlega þreytt, því allir
eru þá jafn kátir og andlega endur-
nærðir.
Það hefur verið haft fyrir satt, að
Svíar séu þungir og seinteknir í við-
kynningu, en þeir sem hafa stundað
,,motion“ með þeim vita að svo er ekki,
því í hóp þeirra, sem vilja ,,motionera“
er öllum tekið tveim höndum.
Ég sannfærðist um að ,,motion“ al-
mennings væri nauðsynjamál og mun
því setja saman nokkra þætti um það,
en þar sem ég er ekki sérlega mikill
málamaður, hefur mér ekki tekizt að
finna íslenzk nöfn á öll þau hugtök, er
ég hefi vanizt að nota, og heldur ekki
getað fundið orð yfir þau hjá öðrum,
sem um mál þessi hafa ritað, Þætti
mér afar vænt um ef lesendur þessa
SKINFAXI
43