Skinfaxi - 01.04.1969, Qupperneq 26
Skarphéðinsheimilið verður notað til
funda og félagsstarfsemi fyrir HSK.
Þá hefir Selfosshreppur tekið húsnæðið
á leigu til hluta-afnota á móti HSK og
fer þar fram margháttuð æskulýðs-
starfsemi á vegum Æskulýðsráðs Sel-
foss. Umf. Selfoss og Skátafélagsins
Fossbúa. I vetur hafa þar og verið til
húsa Tónlistarskóli Árnessýslu, Karla-
kór Selfoss o. fl.
ur er mjög tilfinnanlegur á Selfossi fyr-
ir alla félagsstarfsemi, þess vegna hafa
Selfossbúar verið mjög ánægðir með þá
aðstöðu sem þeir hafa fengið í þessum
nýju og vistlegu húsakynnum HSK.
Það er von forráðamanna Skarp-
héðins að Skarphéðins-heimilið verði
til þess að efla alla félagsstarfsemi inn-
an HSK og jafnframt að æskulýðsstarf
á Selfossi megi þar góðs af njóta.
Mynd úr fclagsheimili
Skarphéðins. Sigurður
Jónsson ræðir við þátt-
takendur í víðavangs-
hlaupi unglinga, hinu
svokallaða „Grýlu-
pottahlaupi".
Um miðjan júnímánuð n. k. verður
þar haldin málverkasýning á vegum
Steingríms Sigurðssonar listmálara, og
rætt hefur verið um aðstöðu fyrir fleiri
sýningar, og margskonar önnur afnot
af þessu húsnæði HSK. Húsnæðisskort-
,,Skarphéðni“ bárust ýmsar góðar
gjafir í sambandi við vígslu félagsheim-
ilisins, m. a. málverk eftir Gísla Sig-
urðsson sem hann gaf ásamt bræðrum
sinum Birni og Jóni.
SAMVINNA FÉLAGSHEIMILANNA
í síðasta blaði var skýrt frá tillögu Kristjáns
Ingólfssonar á sambandsstjórnarfundi í
haust um stofnun félagsheimilaráðs. Hinn 14.
des. sl. var boðað til fundar þeirra landssam-
taka, er aðild eiga að félagsheimilum og var
hann allvel sóttur. Kristján reifaði þar málið
og urðu umræður talsverðar og undirtektir
jákvæðar. Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi
sat fundinn og veitti ítarlegar upplýsingar
um félagsheimilasjóð o. fl. Fundargerð fund-
arins var síðan send forráðamönnum allra
félagsheimila ásamt greinargerð Kristjáns
Ingólfssonar og bréfi, sem nefnd, kjörin á
fundinum samdi. Sú nefnd, sem einnig á að
semja drög að lögum fyrir væntanlegt félags-
heimilaráð er skipuð þeim Óla Val Hanssyni
(Búnaðarfél. ísl.), Baldur Óskarsson (ASÍ) og
Jóhannesi Sigmundssyni (UMFÍ). — Þegar
hafa borizt allmörg svör frá stjórnum félags-
heimilanna og eru undirtektir mjög jákvæðar.
Vonandi verður hægt að skýra frá frekari
framgangi málsins bráðlega.
28
SKINFAXI