Náttúrufræðingurinn - 2008, Síða 4
Náttúrufræðingurinn
Ritrýnd grein
Þröstur Þorsteinsson, Borgþór Magnússon
og Guðmundur Guðjónsson
SlNUELDARNIR MIKLU
Á MÝRUM 2006
1. mynd. Barist við sinueld á Mýrum í grennd við Ánastaði að kveldi 31. mars pegar eldarnir höfðu geisað íhdlfan annan sólarhring. -
Farmers fighting thefenlands fire on Myrar raging on it's second day. Ljósm./Photo: Morgunblaðið/RAX.
Gróðureldar eru algengir víða á jörðinni og árlega brenna nokkrar milljónir
ferkílómetra lands af þeirra völdum. Þessir eldar hafa áhrif á lífríki, valda
dauðsföllum, eyðileggja martnvirki og minjar, menga loft á stórum svæðum
og losa gróðurhúsalofttegundir út í andrúmsloftið. Gervitungl hafa síðustu
ár hjálpað mjög við mælingar á stærð elda, útbreiðslu þeirra og mengun frá
þeim. Á íslandi varð mesti skráði sinubruni íslandssögunnar þegar eldur
kom upp á Mýrum vorið 2006, en þar brann svæði sem var um 73 km2 að flat-
armáli. Til viðmiðunar má nefna að flatarmál Þingvallavatns er um 82 km2.
Með úrvinnslu gervitunglamynda og athugunum á jörðu niðri rekjum við
framvindu eldanna á Mýrum í þessari grein. Einnig verður vikið lítillega að
eldum sem komu upp í mosaþembu á Miðdalsheiði í júní 2007. Þótt bruna-
svæðið á heiðinni væri lítið (0,09 km2) í samanburði við svæðið á Mýrum var
um að ræða einhvem mesta gróðureld í nágrenni Reykjavíkur í seinni tíð.
Rannsóknir okkar em hluti af viðameira rannsóknaverkefni, sem hófst í
kjölfar sinubrunans á Mýmm vorið 2006, á vistfræðilegum áhrifum eldanna en
að rannsóknunum standa Náttúrufræðistofnun íslands, Landbúnaðarháskóli
íslands, Náttúrufræðistofa Kópavogs og Háskóli íslands. Fyrstu niðurstöður
þeirra vom kynntar á Fræðaþingi landbúnaðarins í ársbyrjun 2007.1-9
INNGANGUR
Gróðureldar í heiminum
Gróðureldar eru mjög algengir
víða um heim (2. mynd), en um
80% af öllum gróðureldum verða
í hitabeltinu, þar af 20% á gresjum
Afríku.10-11 Um 142 þúsund ferkíló-
metrar af regnskógum eyðast á ári
hverju, mestmegnis vegna elda sem
kveiktir em til að ryðja ný svæði.
Árlega brenna allt frá 750 þúsund
til 8,2 milljón ferkílómetrar lands í
gróðureldum.12 Um 90% þeirra eru
af mannavöldum, bæði þeir sem
kveiktir eru til að ryðja svæði og
þeir sem kvikna óvart. Á síðustu
árum hefur verið hægt að kortleggja
84
Náttúrufræðingurinn 76 (3-4), bls. 84-94, 2008