Náttúrufræðingurinn - 2008, Síða 29
Ritrýnd grein
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Hrönn Egilsdóttir og Bjarni K. Kristjánsson
DVERGBLEIKJA í
GRENND VIÐ JÖKULSÁ
Á Fjöllum
ísland býður upp á fjölbreytt ferskvatnsbúsvæði fyrir lífverur1^ en þrátt
fyrir það er hér aðeins að finna sex tegundir ferskvatnsfiska. Ástæðan fyrir
þessu er líklega tvíþætt. Annars vegar er langt til meginlanda og ísland ein-
angruð eyja umlukin hafi. Hins vegar er stutt síðan ísaldarjökllinn hörfaði
og búsvæði ferskvatnsfiska urðu aðgengileg.1 Þrátt fyrir lítinn tegundafjöl-
breytileika er fjölbreytileiki innan ákveðinna tegunda mikill hér á landi.5'6
Helst hefur athygli vísindamanna beinst að hornsíli (Gasterosteus aculeatus)
og bleikju (Salvelinus alpinus) í því sambandi, en innan beggja tegunda má
finna hin ýmsu afbrigði sem sýna mismunandi aðlögun að ólíkum búsvæð-
um.7'8 Talið er að samsvæða afbrigðamyndun eigi sér helst stað þar sem
ólíkar vistir eru til staðar í vatni og bjóða upp á mismunandi sérhæfingu.9 í
flestum tilfellum lifa tvö afbrigði saman í vötnum. Þingvallavatn hefur
vakið sérstaka athygli vísindamanna í þessu sambandi, en þar er að finna
fjögur afbrigði bleikju sem eru gerólík hvað varðar val á fæðu og búsvæð-
um. Þessi afbrigði eru kuðungableikja, sem er botnlæg og getur náð mik-
illi stærð, dvergbleikja, sem er mjög smávaxin og botnlæg, murta, sem er
smávaxið afbrigði og nærist mest á svifi úti í vatnsbolnum, og sílableikja,
sem getur orðið nokkuð stór og lifir nær eingöngu á hornsílum og heldur
til í kransþörungabelti vatnsins.5'10-13 Afbrigðin geta æxlast saman en
líklega gerist það sjaldan þar sem æxlunarhegðun þeirra er mismun-
andi14 og/eða þau hrygna á mismunandi tímum eða stöðum.15
Afbrigðamyndun sem þessi er ekki einskorðuð við fiska, heldur hefur hún
einnig sést hjá skordýrum, fuglum og froskdýrum.9
Sýnt hefur verið fram á fylgni
milli aðgreiningar í erfðafræði
og svipfari bleikjustofna og er
því talið líklegt að aðlögun að
ólíkum auðlindum (fæðu og eða
búsvæðum) ráði miklu um sam-
svæða tegundamyndun.16 Rann-
sóknir á afbrigðum sem eru komin
mislangt í aðskilnaði geta því verið
mikilvægar til að varpa ljósi á sam-
svæða tegundamyndun. Stofnar
innan tegunda sem aðlagast hafa
svipuðu búsvæði hafa gjarna áþekka
svipgerð.10 Talað er um samhliða
þróun þegar tvær tegundir eða
stofnar innan sömu tegundar sýna
svipaða aðlögun að líkum búsvæð-
um. Hefur samhliða þróun átt sér
stað hjá mörgum tegundum lífvera
og eru þar á meðal margar tegundir
ferskvatnsfiska.10
Hraunbúsvæði bjóða upp á ákjós-
anleg búsvæði með margvíslegu
skjóli og fæðu7 og er þetta talið eiga
töluverðan þátt í þróun og sérhæf-
ingu meðal ferskvatnsfiska.17'18
Náttúrufræðingurinn 76 (3-4), bls. 109-114, 2008
109