Náttúrufræðingurinn - 1995, Side 31
■ talningasvæði
Rjúpnatalningasvæðin eru víðsvegar um
Þingeyjarsýslur (3. mynd). Stærsta svæðið
er 8,0 km2 en það minnsta 2,4 km2, samtals
eru þau 26,8 km2.
HóLL (66° ÍO'N. 17° 10"V)
Þetta er minnsta svæðið og er ofan þjóð-
vegar á milli Hallbjarnarstaða og Ketils-
staða á utanverðu Tjörnesi. Svæðið er 3,1
km að lengd og breiðast 0,9 km, samtals
2,4 km2. Það má skipta því í tvennt með
tilliti til gróðurfars, annar hlutinn er blaut
mýri (Hólsflói, 0,7 km2) og hinn hlutinn
ásar sem liggja að mýrinni. Mýrin er í um
90 m hæð yfir sjó og ásarnir ná hæst í 140
m. Þurrlendið er þýfður lyngmói og áber-
andi gróður er krækilyng (Empetrum nigr-
um), beitilyng (Calluna vulgaris), fjall-
drapi (Betula nana) og bláberjalyng
(Vaccinium uliginosum). Svæðið er algró-
ið nema efst í ásunum.
LAXAMÝRI (65° 59'N, 17° 23'V)
Þessi reitur er ofan þjóðvegar á milli
Saltvíkur og Laxamýrar sunnan Húsavík-
ur. Það er 3,7 km2, 3,2 km að lengd og
breiðast 1,5 km. Það er algróið nema
grýttir melkollar við austurjaðar svæðis-
ins. Þýfðir lyngmóar eru ríkjandi gróður-
lendi og að gerð minna þeir á móana við
Hól. Neðsti hluti svæðisins er í 60 m hæð
yfir sjó og það nær efst í 160 m hæð.
BlRNINGSSTAÐIR (65°46’N. 17° 18'V)
Talningasvæðið er stærstur hluti jarðar-
innar Birningsstaða í Laxárdal. Stykkið er
3,9 km að lengd og breiðast 1,5 km,
flatarmálið er 5,7 km2. Þetta eru austur-
hlíðar Þorgerðarfjalls, að neðan markast
svæðið af þjóðvegi við Laxá og að ofan
af fjallsbrúninni, landamerkjagirðingar
marka það að norðan og sunnan. Vegurinn
er í 140 m hæð yfir sjó og ljallsbrúnin í um
400 m hæð. Svæðið er algróið hið neðra,
brekkuræturnar eru mýri, grasmóar, gró-
inn hraunkantur og gamalt tún. Hlíðarnar
eru þýfðir lyngmóar og hrísmóar en
fjallstoppurinn er gróðurlaus melur. Mikið
vatnsrof er efst í móunum. Nokkur mel-
stykki eru miðjum hlíðum fjallsins. Birki-
kjarr (Betula pubescens) (0,3 km2) er
norðan bæjar. Þetta svæði taldi Ragnar
Sigfinnsson á árunum 1963 til 1974 (sbr.
Ævar Petersen 1991).
HóFSTAÐAHEIÐI (65° 37'N. 17° 10'V)
Talningasvæðið er syðsti hluti Hofstaða-
heiðar í Mývatnssveit, samtals 4,5 km2.
Svæðið er 2,9 km að lengd og breiðast 2,4
km, að austan markast það af túnum og
þjóðvegi, að sunnan og vestan af Laxá, og
norðurmörkin ér lína sem hugsast dregin
frá Hofstöðum í Selás og Hvilftarás.
Svæðið er algróið, næst Laxá er graslendi
en upp frá ánni taka við þýfðir hrísmóar,
áberandi smárunnar eru fjalldrapi og gul-
víðir (Salix phylicifolia). Bakkar Laxár
eru í um 260 m hæð yfir sjó og efsta bung-
an í Selás er í um 340 m hæð.
BÚRFELLSHRAUN (65° 39'N. 16° 38’V)
Fimmta talningasvæðið er við Búrfells-
hraun austan Mývatns. Svæðið er 2,5 km2,
það er 3,8 km að lengd og breiðast 1,1 km.
Spildan markast af þjóðvegi að norðan og
norðurjaðri Búrfellshrauns að sunnan,
austurendinn er við Skeiðllöt og vestur-
endinn á móts við sandgræðslugirðingu
neðst í Austaraselsheiði. Einnig er talin
með 100 m breið spilda ofan þjóðvegar.
Hraunkanturinn er í um 360 m hæð yfir sjó
og ásarnir þar uppaf í um 400 m hæð.
Svæðið er algróið, þýfðir hrísmóar, nema
hraunkanturinn. Fjalldrapi, gulvíðir og
einir (Juniperus communis) eru áberandi í
móunum.
HaFURSSTAÐIR (65° 55'N. 16° 27'V)
Stærsta talningasvæðið er Vígabrekkumór
og nágrenni sunnan Hafursstaða í Öxar-
firði. Svæðið er 4,1 km að lengd, breiðast
2,4 km og er 8,0 km2. Norðurmörkin eru
heimreiðin að Hafursstöðum, vesturmörk-
in slóðinn í Forvöð, suðurmörkin lína sem
hugsast dregin frá melnum við Ytri-
Sokkabrot rakleitt austur í Vígabrekku, og
austurmörkin eru ásabrúnir Vígabrekku og
Sauðafellsháls. Svæðið er algróið nema
141