Náttúrufræðingurinn - 1995, Page 45
2. mynd. Sandmaðkar grafa sig misdjúpt ísetið eftir aldri. - The lugworms burrow to a dif-
ferent depth in the sediment according to age (from Thorson 1968).
hreyfingar í líkama dýrsins sjá um að halda
við þessum straumi gegnum rörið. Bent
hefur verið á að nær væri að lýsa dýrinu
sem síara en sem hreinni eðjuætu, því að
það virðist geta notað dælinguna gegnum
setið til þess að safna í það lífrænum leifum
og örverum úr yfirborðinu (Kriiger 1959,
Thorson 1968). Maðkurinn meltir það sem
nothæft er í setinu sem hann gleypir, gerla
og aðrar smálífverur ásamt ýmsum lífræn-
um leifum, og skilar síðan afganginum út
um þarmopið upp á yfirborðið. Lyftir hann
sér þá upp í rörinu þar til afturendinn nær
upp undir yfirborð og setur þar af sér hina
velþekktu hrauka (Wells 1945). Selið færist
því í öfuga átt við vatnsstrauminn í rörinu.
Hraukar sandmaðksins eyðast auðveldlega
og þarf ekki nema lítils háttar öldugang til
þess að þeir eyðileggisl. Þar sem skýlt er
endast þeir lengur og geta orðið allstórir.
Rörin varðveitast hins vegar betur, enda
þarf meira rask til þess að afmá þau þar sem
þau ná allt að 30 cm niður í setið.
För EFTIR SANDMAÐK í JARÐLÖGUM
För eftir rör sandmaðks hafa víða fundist í
jarðlögum, bæði hér á landi og erlendis, en
oftast finnst þá ekkert af sjálfum maðk-
inum, enda varðveitist hann illa í jörðu þar
sem engir líkamshlutar hans eru úr hörðu
efni. Förin tilheyra þeirri gerð líffara sem
nefnast fæðuför. Jóhannes Áskelsson (1960)
lýsti slíkum förum í sethnyðlingum (sand-
steinskúlum) í móbergi í Skammadals-
kömbum í Mýrdal og nefndi þau Arenicola
cf. marina L. Hnyðlingarnir eru líklega
tæplega þriggja milljóna ára gamlir, eða af
svipuðum aldri og krókskeljalögin á Tjör-
nesi. Raunar má búast við förum af þessari
gerð í öllu eðjubornu strandseti hér á landi
frá tertíerlokum og fram á nútíma, þar sem
orka í umhverfinu var ekki nægilega ntikil
til þess að má þau út jafnóðum.
Ferðir sandmaðks
Það tekur sandmaðk yfirleitt aðeins 2-6
mínútur að grafa sig niður, en það fer mjög
155