Náttúrufræðingurinn - 1995, Page 107
taldar vera of dræmar til að liægt væri að
koma á skipulegu samstarfi þessu sinni.
Skýrsla FORMANNS
Varaformaður félagsins, Hreggviður Norð-
dahl, las skýrslu um starfsemi HÍN árið
1994. A árinu fjölgaði í félaginu í fyrsta sinn
í sjö ár, eða síðan á árinu 1987. Þetta er
einkum þakkað breytingum þeim sem gerðar
hafa verið á efni og útliti Náttúrufræðingsins.
Aðsókn að fræðslufundum var mjög góð,
þrívegis yfir 100 manns, og sæmileg þátttaka
í fræðsluferðum félagsins, þrátt fyrir síharðn-
andi samkeppni á þeim vetlvangi. Fjárhagur
félagsins var bærilegur, þó sjóðir væru ekki
digrir í Ijósi þess sem gera þarf í útgáfu
Náttúrufræðingsins til að ná honum á réttan
útgáfutíma. í heild virðist hafa tekist að festa
stöðu félagsins og aðlaga starfsemi þess
breyttum aðstæðum.
Reikningar FÉLAGSINS
Gjaldkeri félagsins, Ingólfur Einarsson,
kynnti reikninga félagsins og voru þeir
samþykktir án athugasemda. Velta félagsins
var rúmar 8 milljónir króna og eign í sjóði
umfram skuldir um I milljón, auk ritabirgða
og annarra eigna. Útgjöld voru með meira
móti vegna útgáfu bókarinnar„Surtsey“, sem
út kom undir lok ársins, og sex hefta af
Náttúrufræðingnum. Gekk því heldur á sjóði
félagsins þetta árið, eins og fyrir hafði verið
séð.
Dýraverndunarnefnd
Ný dýraverndunarlög, um vernd og veiðar
villtra dýra og fugla, tóku gildi á árinu og tók
ný nefnd, villidýranefnd, við hluta af
hlutverki fuglafriðunarnefndar. í mars tóku
gildi ný lög um dýravernd en samkvæmt
þeim skipar HÍN einn fulltrúa af fimm í
Dýraverndarráð, sem tekur við hlutverki
Dýraverndunarnefndar. Var Sigurður H.
Richter tilnefndur af hálfu HÍN. Ráðið hélt
þrjá fundi á árinu, en undir lok ársins var
mikið fjallað um kjör útigönguhrossa á
landinu, að gefnum tilefnum.
Lagabreyting
Tillaga kom frá stjórn HÍN um að síðasta
málsgrein í 4. grein félagslaga („Árgjald og
breytingar á því er ákveðið á aðalfundi")
verði felld niður en í hennar stað komi eftir-
farandi málsgrein: „Stjórn HIN ákveður
árgjald hvers árs fyrir lok næsta árs á undan.“
Tillaga þessi var samþykkt með 10 atkvæð-
um gegn 2. Breyting þessi er gerð svo að
miða megi árgjald við áramót en ekki við
aðalfundardag, einhvern tíma í febrúar. Það
er til mikils hagræðis í innheimtu og bók-
haldi.
Félagsgjöld
Stjórn HÍN lagði til að árgjöld yrðu óbreytt,
þ.e. 3.000 kr. fyrir einstakling, árgjald hjóna
yrði 3.600 kr. og ungmennaárgjald (að 23 ára
aldri) 2.000 kr. Tillagan var samþykkt ein-
róma.
Stjórnarkjör
Úr stjórn áttu að ganga Hreggviður Norðdahl
og Sigurður S. Snorrason. Þeir gáfu báðir
kost á sér til endurkjörs og voru endurkjörnir
einróma. Tillaga kom frá stjórn um vara-
menn, þá Helga Guðmundsson kennara og
leiðsögumann og Hilmar J. Malmquist líf-
fræðing. Voru þeir kjörnir einróma. Sveinn
Ólafsson gaf kost á sér aftur sem endur-
skoðanda en Magnús Árnason baðst undan
endurkjöri, eftir fímm áratuga starf hjá
félaginu. í hans stað stakk stjórn HÍN upp á
Tómasi Einarssyni og voru þeir Sveinn og
Tómas kjörnir einróma. Varaendurskoðandi,
Ólafur Jónsson, lést á árinu og stakk stjórn
HÍN í hans stað upp á Kristni Einarssyni,
sem var kjörinn einróma.
Önnur mál
Stjórn HÍN lagði til að Magnús Árnason yrði
kjörinn kjörfélagi HÍN og var það santþykkt
einróma. Var Magnúsi svo afhent Surtseyjar-
bók félagsins sern þakkarvottur fyrir langan
starfsferil í þágu félagsins. Magnús þakkaði
fyrir sig og bað alla heillavætti að fylgja
félaginu og félögum þess. I febrúar, eftir
aðalfund, varð Magnús níræður og átti þá
hálfrar aldar starfsferil hjá félaginu að baki.
Tillaga kom fram frá stjórn HIN að ályktun
um náttúruhús. Nokkrar umræður urðu um
tillöguna, sem síðan var samþykkt örlítið
stytt. Hljóðar hún svo: „Aðalfundur HÍN
1995 beinir þeim tilmælum til hlutaðeigandi
sljórnvalda, að þau láti ekki niður falla áform
um byggingu og rekstur Náttúruhúss í
215