Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 6
2. mynd. Kort af Sumbawa og staðsetning Tambora i Austur-Indíum. Jafnþykktarlínur
sýna útbreiðslu gjóskufalls frá gosinu 1815 í sentimetrum.
undirbúa leiðangur til Indónesíu, með
styrk og aðstoð frá National Geo-
graphic Society. Undirbúningur fyrir
fyrsta leiðangurinn til Tambora tók
nokkur ár. Ekki var sá seinagangur
sökum íjárskorts eða áhugaleysis held-
ur eingöngu vegna ótrúlegrar skrif-
finnsku sem einkennir indónesíska ein-
ræðisríkið. Loks var rannsóknaleyfíð
samþykkt og leiðangurinn hófst í ágúst
1986 og lauk í október. Félagi minn í
þessari ferð var Steven Carey, fyrr-
verandi nemandi minn frá Rhode
Island háskóla.
Eldvirkni í Austur-Indíum á rætur
að rekja til sökks. Jarðskorpuflekinn
mikli sem Astralía situr á færist hægt
og sígandi (7,8 cm á ári) til norðurs
og mætir Asíuflekanum við Indónesíu.
Astralíuflekinn þrýstist niður í möttul
jarðar undir indónesísku eldfjalla-
eyjarnar, sem eru á suðurbrún Asíu-
flekans. Því fylgja mikil átök þegar
tveir flekar rekast á, hvor um sig um
100 km á þykkt. Af því stafar mikil
jarðskjálftavirkni, allt niður á 300 km
dýpi, og svo eldgos sem hafa hlaðið
upp fjölda af eyjum á 3000 km langa
bogadregna línu eftir flekamótunum,
allt frá Súmötru í vestri til Nýju-Gíneu
í austri. Eldíjallið Tambora er um átta
gráður sunnan við miðbaug, á norður-
hluta eyjarinnar Sumbawa, sem er í
austurhluta eyjaklasans, skammt austan
við hina fögru eyju Balí (2. mynd).
Tambora myndar stóran skaga sem
gengur norður úr Sumbawa og er eld-
fjallið um 50 km í þvermál ofansjávar
en sökkull þess nær undir Flóreshaf,
niður á a.m.k. 1 km dýpi. Það er því
með allra stærstu eldfjöllum jarðar.
Fyrir gosið mikla var Tambora hæsta
128