Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 35
ónæmis gegn honum - en hvorki apar
í öðrum heimsálfum né menn.
HIN VOTA VAGGA MANNKYNS
Afar er fornt heiti á svæði í Eþíópíu,
vestur af syðsta hluta Rauðahafs. Þar
eru nú þykk saltlög og ein hrjóstr-
ugasta eyðimörk heims. í Afar hafa
steingervingafræðingar og jarðfræðing-
ar gert merkar uppgötvanir. Þar fannst
heilleg beinagrind af prímata sem
minnti um margt á apa en gekk upp-
réttur - eða upprétt, því þetta var kven-
vera sem gengur almennt undir nafninu
Lucy, en fræðiheiti tegundarinnar er
Australopithecus afarensis, suðurapinn
frá Afar. Fleiri einstaklingar þessarar
tegundar hafa fundist steingerðir í
Austur-Afríku. Sumir telja þá forfeður
okkar eða mjög nærri stofni þeirra.
Leifarnar eru taldar um þriggja
milljóna ára.
Seint á míósentíma, fyrir um sjö
milljón árum, lá innhaf yfír norðan-
verðu Afar. Inni í því er talið að hafí
verið eyja þar sem nú heitir Danakil. Á
henni telur heimildarmaður Morgans,
Leon P. LaLumiere yngri, vísinda-
maður við Rannsóknastöð bandaríska
flotans í Washington, að áar manna
hafi einangrast og leitað þaðan út á
sjóinn. Hafið lokaðist síðar frá úthafinu
af eiði, breyttist á milljónum ára í
brimsalt stöðuvatn líkt Dauðahafínu og
þornaði að lokum með öllu fyrir einum
70 þúsund árum. Vatnsaparnir hopuðu
á land undan seltunni og við Lucy
erum samkvæmt því í hópi afkomenda
þeirra.
Frá ármilljónunum síðan á míósen-
tíma þar til suðuraparnir komu fram
hafa engin merki fundist í jarðlögum
um prímata er verið gætu forfeður
mannkyns - engar tennur, engin stein-
5. mynd. Ungbörn geta lært að synda
löngu áður en þau geta gengið (Morgan
1982).
gerð bein. Um þessa eyðu í stein-
gervingasögu okkar skrifar Elaine
Morgan: „Er hugsanlegt að eyðan stafi
af því að þá hafí maðurinn lifað og
dáið í hafí? Átu þróttmikil sjávardýr
leifar hans og bruddu bein hans þar
til þau voru óþekkjanleg, eða leystust
þau upp og eyddust í hitabeltissjó?
Kannski kemur að því að þessir
hlekkir, sem nú vantar, finnist í
strandlögum frá plíósentíma." (The
Aquatic Ape, bls. 144-145.)
HEIMILDIR
Morgan, E. 1972. The Descent ofWoman.
Stein and Day, New York.
Morgan, E. 1982. The Aquatic Ape. Stein
and Day, New York.
Morgan, E. 1990. The Scars of Evolution.
Penguin Books, Harmondsworth.
PÓSTFANG HÖFUNDAR
Ornólfur Thorlacius
Menntaskólanum við Hamrahlið
105 REYKJAVÍK
157