Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 36
Erling Ólafsson
Athyglisverð skordýr:
Garðaklaufhali
Klaufhalar mynda einn ættbálk skor-
dýra (Dermaptera) en til þeirra teljast
um 1200 tegundir í heiminum, lang-
flestar á suðlægum slóðum. Þessi ætt-
bálkur á engan fulltrúa á Islandi en ein
tegund, garðaklaufhali Forficula auri-
cularia Linnaeus, slæðist hingað af og
til með varningi. Hún á það jafnvel
til að taka sér bólfestu í gróðurhúsum
um lengri eða skemmri tíma.
Arlega berast nokkrar fyrirspurnir til
Náttúrufræðistofnunar Islands um
garðaklaufhala og eintök fylgja gjarnan
með. Á árunum 1990-1992 voru fyrir-
spumimar 2-4 á ári hverju. Svo bar
hins vegar við að þær urðu alls 19 árið
1993 og 17 eintök bárust mér í hendur.
Þetta gerðist á tímabilinu 22. júní til
13. desember. Dýrin virtust berast með
ýmsum sendingum, þó einkum með
grænmeti. Einnig slæddust klaufhalar
með póstsendingum og jafnvel farangri
ferðamanna. Það bar við að fólk fyndi
klaufhala í kæliskápum sínum eftir að
hafa birgt sig upp af grænmeti.
Það er óljóst hvernig á þessari aukn-
ingu garðaklaufhala hér á landi stendur
en ætla má að fjöldi þeirra hafi verið
með meira móti úti í Evrópu þetta
sumar. Það er velþekkt fyrirbæri að
stofnstærðir dýrategunda sveiflist milli
ára og geta slíkar sveiflur verið svo
miklar hjá ýmsum skordýrum að þau
sjáist vart eitt árið en allt fyllist af
þeim það næsta. Svo mikilla sveiflna
verður stundum vart hjá skordýrateg-
undum hér á landi.
Garðaklaufhali er mjög algeng teg-
und og útbreidd um nær allan heim. I
Evrópu lifir hann allt norður til
sunnanverðs Noregs og fínnst einnig
á Hjaltlandi og í Færeyjum. Hér á
landi á hann sennilega litla möguleika
á að þrífast nema í nánum tengslum
við manninn, einkum í gróðurhúsum,
og e.t.v. lifír hann að staðaldri í ein-
hverjum þeirra.
Garðaklaufhali athafnar sig einkum
að næturlagi og safnast gjarnan marg-
ir saman undir steinum og ýmsu öðru
lauslegu á jörðinni. Hann lifír á rotn-
andi plöntu- og dýraleifum og sækir oft
í rotnandi ávexti. Kvendýrið verpur á
veturna, frá nóvember til mars, í holu
í jörðu. Það annast stöðugt um eggin
til að þau þroskist eðlilega og verði
ekki sýkingum að bráð. Þegar eggin
klekjast deyr móðirin og er étin upp
af ungviðinu. Þetta er eitt dæmið um
skynsamlega nýtni móður náttúru.
Garðaklaufhali er mjög breytilegur að stærð, 14-23 mm. Aftur úr dýrunum eru tvö
hörð skott eða álmur (klofinn hali). Á álmunum má auðveldlega þekkja kynin; á
karldýrum eru þær mun sterklegri og sveigðar svo að gapir á milli þeirra, á kvendýrum
hins vegar því sem næst beinar og samliggjandi. Karldýr til vinstri, kvendýr til hægri.
Náttúrufræðingurinn 63 (3-4), bls. 158, 1993.
158