Náttúrufræðingurinn - 1993, Qupperneq 54
Norður-Atlantshaf fyrir rúmlega einni
og hálfri milljón ára. A 12. mynd er
sýnt hvaða áhrif loftslagsbreytingarnar
höfðu á umhverfið við norðurströnd
Islands. Sjónarhornið er frá norðaustri
og er horft inn til landsins, líkt og horft
væri til Tjörness inn eftir Öxarfirði á
okkar dögum. Á efsta hluta myndar-
innar (1) er landið hulið ís sem skreið
til norðurs sunnan af hálendi íslands.
Á þessum tíma myndaðist rofflötur og
jökulurðarlag við botn Svarthamars-
syrpu. Þegar jökulskjöldurinn bráðn-
aði byggðist óseyri fram í fjörðinn,
sem myndaðist við áflæði sjávar í lok
jökulskeiðsins (2). Áflæðin hefur staf-
að af því að miklar jökulbreiður bráðn-
uðu á heimskautasvæðunum. I upphafi
hefur ísinn náð fram í sjó og gruggugt
bræðsluvatnið borist út á grunnsævið
framan við, ásamt ísjökum sem brotn-
uðu frá kantinum. Bæði götungafánan
og lindýrafánan sýna að sjórinn var
ískaldur. Jökullinn hörfaði loks langt
inn til landsins og Qörðurinn lengdist
jafnframt til suðurs því að landið var
enn bælt niður undan fargi jökul-
skjaldarins. Mikil eðja skolaðist til
sjávarins af lítt grónu landinu. Öskulög
í sjávarsetinu sýna að um þetta leyti
urðu fleiri en eitt eldgos í grenndinni,
e.t.v. samfara jarðskorpuhreyfíngum
sem urðu þegar land byrjaði að rísa og
leita jafnvægis á ný (3). Smám saman
flæddi sjór aftur af landinu eins og
sést á breytingum á götungum í
Cassidulina teretis-Islandiella helenae
beltinu og á setlögum sem hafa
myndast alveg við ströndina. í efstu
setlögunum eru svo heimildir um
hlýjan sjó og hæga áfíæði, sem kann
að hafa stafað af hægfara hækkun í
heimshöfunum vegna jöklabráðnunar
og hlýnunar en einnig af hægfara
landsigi í fírðinum. Hlýskeiðið var
gengið í garð (4) og landið klæddist
gróðri. Jafnframt hafa hraun runnið
niður dali og sanda rétt eins og um
Öxaríjörð okkar daga.
HEIMILDIR
Aronson, J.L. & Kristján Sæmundsson
1975. Relatively old basalts from struc-
turally high areas in central Iceland.
Earth and Planetary Science Letters 28.
83-97.
Gladenkov, Y.B. 1974. The palaeonto-
logical character of the Plio-Pleistocene
in the North Atlantic (Iceland). Proc.
USSR Acad. Sci. Geol. Ser. 7. 129-133.
Guðmundur G. Bárðarson 1925. A strati-
graphical survey of the Pliocene depos-
its at Tjörnes, in Northern Iceland. K.
Dan. Vidensk. Selsk., Biol. Medd. 4. 1-
118.
Helgi Pjeturss 1908. Einige Hauptziige der
Geologie und Morphologie Islands.
Zeitschrift der Gesellschaft fiir Erdkunde
zu Berlin 1908. 451-467.
Hurdle, B.G. 1986. The Nordic Seas.
Springer Verlag New York. 777 bls.
Jóhannes Áskelsson 1941. Tjörnes. Þáttur
úr jarðmyndunarsögu þess. Arbók Ferða-
félags íslands 1941. Bls. 80-94.
Jón Eiríksson & Áslaug Geirsdóttir 1991.
A record of Pliocene and Pleistocene
glaciations and climatic changes in the
North Atlantic based on variations in
volcanic and sedimentary facies in Ice-
land. Marine Geology 101. 147-159.
Jón Eiríksson, Andrés I. Gudmundsson,
Leó Kristjánsson & Karl Gunnarsson
1990. Paleomagnetism of Pliocene-
Pleistocene sediments and lava flows
on Tjörnes and Flatey, North Iceland.
Boreas 19. 39-55.
Jón Eiríksson, K. L. Knudsen & Már
Vilhjálmsson 1992. An Early Pleisto-
cene glacial-interglacial cycle in the
Breidavík Group on Tjörnes, Iceland:
Sedimentary facies, foraminifera, and
molluscs. Quaternary Science Reviews
11. 733-757.
Kristinn J. Albertsson 1976. K/Ar ages of
Pliocene-PIeistocene glaciations with
special reference to the Tjörnes se-
quence, northern Iceland. Óprentuð
Ph.D.-ritg. University of Cambridge, En-
gland. 268 bls.
Kristinn J. Albertsson 1978. Um aldur
i
176