Náttúrufræðingurinn - 1993, Síða 79
Guttormur Sigbjarnarson
Norðan Vatnajökuls
II. Jarðlagaskipan og jarðfræðikort
JARÐFRÆÐIKORTLAGNINGIN
í síðasta hefti Náttúrufræðingsins
lýsti ég aðdraganda og skipulagi jarð-
fræðirannsókna á efri hluta vatnasviðs
Jökulsár á Fjöllum í grein minni „Norð-
an Vatnajökuls I. Aðdragandi og
skipulagning jarðfræðikortlagningar“
(Guttormur Sigbjarnarson 1993) þar
sem gerð er grein fyrir jarðfræðirann-
sóknum þar sumrin 1970 og 1971. I
þessum kafla mun ég segja frá megin-
dráttum í jarðlagaskipan svæðisins og
jarðfræðikortinu, nema eldstöðvum,
höggun og hraunum frá nútíma sem ég
mun fjalla um í sjálfstæðri grein í fram-
haldi af þessari.
Meginniðurstöðum rannsóknanna var
safnað saman á jarðfræðikort
(berggrunnskort) í mælikvarðanum
1:100.000, sem unnið var á teiknistofu
Orkustofnunar (Guttormur Sigbjarnar-
son, Kristinn Albertsson og Kristinn
Einarsson 1974). Jafnframt gerðum við
sérstaka lýsingu á sérhverri korteiningu
berggrunnskortsins. Þetta kort er sýnt
mjög mikið smækkað á 1. mynd, a,b
og c.
Gagnasöfnun fyrir jarðfræðikortið
var unnin á hefðbundinn hátt. Við
ferðuðumst um rannsóknarsvæðið og
leituðum uppi opnur í berggrunninn
og kortlögðum þær. Jarðlagasnið voru
tekin þar sem því varð við komið.
Svæðinu var skipt niður í jarðfræði-
legar einingar, sem oftast voru taldar
myndaðar í einu gosi eða í fleiri hlið-
stæðum gosum. Leitast var við að ná
bergsýnum úr sem allra flestum mynd-
unum og segulstefnan mæld í þeim.
Til frekari túlkunar á niðurstöðum úti-
rannsóknanna voru loftmyndir mjög
mikið notaðar við gerð jarðfræðikorts-
ins. Þeir Kristinn Albertsson og Krist-
inn Einarsson unnu með mér að gerð
handritsins af kortinu og þeir tóku
einnig virkan þátt í lýsingum á kort-
einingum þess. Nokkur verkaskipting
var á milli okkar við jarðfræðikort-
lagninguna en þó ávallt höfð náin sam-
vinna um rannsóknirnar. Kristinn Al-
bertsson rannsakaði sérstaklega Fagra-
dalsíjall, Alftadalsdyngju og austur-
hluta Krepputungu. Hann samdi um
þann hluta sérstaka ritgerð sem próf-
verkefni við jarðfræðiskor Verkfræði-
og raunvísindadeildar Háskóla Islands
(Kristinn Albertsson 1972). Auk hinnar
almennu kortlagningar vann hann þar
að verulegum bergfræðirannsóknum.
Kristinn Einarsson vann mest á aust-
asta hluta svæðisins en ég sá um vest-
urbakka Jökulsár á Fjöllum og Kreppu-
tungu auk þess að hafa yfirumsjón með
allri gerð og frágangi jarðfræðikortsins
og ber jafnframt ábyrgð á flestum jarð-
fræðitúlkunum sem þar eru settar fram.
Við gerð jarðfræðikortsins (1. mynd)
lögðum við mesta áherslu á berggrunn
svæðisins, sögulegt samhengi hans og
höggun jarðskorpunnar, þar sem unnt
Náttúrufræöingurinn 63 (3-4), bls. 201-217, 1993 . 201