Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 127
1. tafla. Ræktunartími kræklings frá lirfu að markaðsstærð (50-60 mm) á nokkrum
hafsvæðum.
Staður Ræklunartími Heimild
Skotland 12-14 mánuðir Mason & Drinkwater (1981)
Svíþjóð 17-18 mánuðir Loo & Rosenberg (1983)
Suður-Noregur 14-16 mánuðir Bohle (1979)
Norður-Noregur 3-4 mánuðir Wallace (1980)
Hvalfjörður 24 ntánuðir Núverandi rannsókn
um 1°C yfir aðalhrygningartímann en
seinna árið hækkaði hitinn um 4°C
mánuðinn fyrir hrygningu og um 2°C
yfir hrygningartímann. Þessar
mismunandi hitabreytingar gætu ef til
vill skýrt mismunandi hrygningartíma
og mismunandi lengd hans þar sem
hrygningin seinna árið var kröftugri
frá byrjun og lauk fyrr en árið áður.
Seltubreytingar í Hvalflrði eru mjög
litlar og hafa varla skipt neinu máli í
þessu sambandi.
Kræklingslirfurnar settust á bönd í
Hvalfírði frá miðjum ágúst fram í
miðjan september. Aðalásetan átti sér
stað um miðjan september og samsvar-
aði um 1.250.000 einstaklingum á
fermetra, sem er helmingi meira magn
en mældist bæði í kræklingsíjöru á
Englandi (Seed 1969) og í ræktun í
Svíþjóð (Kautsky 1982).
Miðað við aðalhrygningartímann
voru lirfurnar sviflægar um 4-5 vikur
áður en þær settust á böndin. Sviflægt
tímabil kræklingslirfa er yfirleitt
áætlað 3-4vikur (Bayne 1965) og fer
lengd þess eftir seltu, hitastigi og fæðu
fyrir lirfurnar á tímabilinu; lélegri um-
hverfisaðstæður lengja tímann (Bayne
1976).
Sjávarhiti og fæða eru talin ráða
mestu um vöxt dýra eins og kræklings.
I Hvalfirði var vaxtartímabil kræk-
lingsins frá mars til október og virtist
vöxturinn frekar tengjast fæðunni en
hitastiginu. Engar athuganir voru gerð-
ar á magni svifþörunga í mars en búast
má við vorblóma þeirra á þessum tíma
(Þórunn Þórðardóttir 1985), sem þá
hefur í för með sér mikið fæðufram-
boð fyrir skeljarnar. í mars var hita-
stigið í Hvalfírði nærri lágmarki.
Lágur hiti virtist þó ekki hindra vöxt
skeljanna og sambærilegar niðurstöð-
ur hafa fengist við athuganir á vexti
kræklings í Norður-Noregi (Wallace
1980) og Bandaríkjunum (Page 1988).
Aðrar rannsóknir hafa þó leitt í Ijós
beint samband milli sjávarhita og skel-
vaxtar (Kriby-Smith og Barber 1974,
Richardson o.fl. 1982).
I maílok 1987 var svifþörunga-
tegundin Heterosigma akasiwo ríkjandi
áræktunarstaðnum en hún hefur ekki
fundist áður hér við land. Talið er að
þessi svifþörungur hafí valdið laxa-
dauða í eldi í Hvalfirði á þessurn tíma
en engin merki um eitrun af neinu tagi
var að finna i kræklingnum í Hvíta-
nesi Heterosigma akasiwo hefur
valdið fískidauða í Kanada, Skotlandi
og Japan en ekki er vitað um áhrif
tegundarinnar á skeldýr (Tangen, pers.
uppl.).
Tveimur árum eftir að lirfurnar
settust á ræktunarböndin í Hvalfírði
höfðu skeljarnar náð markaðsstærð,
eða 57 mm lengd.
1. tafla sýnir að það tekur mislangan
tíma að rækta kræklingslirfu upp í
249