Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 131
Gunnlaugur Pétursson
Flækingsfuglar á íslandi:
Kjóar *
INNGANGUR
í þessari grein verður fjallað um tvær
kjóategundir, ískjóa (Stercorarius pom-
arinus) og fjallkjóa (Stercorarius longi-
caudus). Þær verpa ekki hér á landi en
sjást hér árlega og eru taldir vera far-
gestir. Islensku kjóamir (Stercorarius
parasiticus) eru einungis nefndir „kjó-
ar“ meðal landsmanna. 1 þessari grein
eru þeir hins vegar kallaðir „vætukjóar“,
eins og Bjami Sæmundsson (1936) gerði
í „Fuglunum", til þess að koma í veg
fyrir rugling við ískjóa og fjallkjóa þegar
þessar þrjár tegundir em bomar saman.
„Kjóar“ verður hér notað sem samheiti
þessara þriggja tegunda. Þó er ekki ver-
ið að mæla með því að heitið „vætuk-
jói“ verði notað á íslenska kjóann.
Kjóar og skúmar teljast til ættbálks
strandfugla (Charadriiformes), ásamt
vaðfuglum, máfum, þernum og svart-
fuglum, en skipa sérstaka ætt (kjóaætt,
Stercorariidae) innan ættbálksins. Af
kjóaætt eru þekktar sex tegundir, þrjár
tegundir kjóa (ískjói, vætukjói og fjall-
kjói) og þrjár tegundir skúma (ýmist
neíndir Catharacta eða Stercorarius),
þ.e. skúmur (Catharacta skua) sem
verpur hér á landi, sæskúmur (Cathar-
acta maccormicki) og Catharacta chil-
ensis. Sumir telja skúmategundirnar
fjórar og bæta þá við Catharacta ant-
arctica eða jafnvel fímm og bæta enn
* Flækingsfuglar á íslandi. 11. grein: Nátt-
úrufræðistofnun Islands.
við Cathaacta lonnbergi (sjá m.a. Sib-
ley og Monroe 1990).
Allar skúmategundimar nema skúm-
urinn verpa á suðurhveli jarðar en sæ-
skúmur fer eitthvað norður í N-Atlants-
haf og N-Kyrrahaf, sérstaklega ungfugl-
ar og sjást þar einkum í júní til septem-
ber. Þessi tegund hefur m.a. náðst við
Grænland (Salomonsen 1976), sést við
Nýfundnaland (Jensen 1982) og einn
náðist við Færeyjar 1889 (Boertmann
o.fl. 1986). Nokkrir fuglar eru taldir hafa
sést við England eftir 1982 en þær at-
huganir hafa ekki verið formlega sam-
þykktar (Lewington o.fl. 1991).
Fundir ískjóa og fjallkjóa hér við land
verða raktir i tímaröð til ársloka 1980.
Nokkrar hinna eldri athugana hafa áður
birst á prenti en meginhluti þeirra eru
þó óbirt gögn á Náttúrufræðistofnun ís-
lands. Einnig verður gefíð lauslegt yfírlit
yfír fugla sem sést hafa til ársloka 1991
en upplýsingar um þá hafa áður birst í
skýrslum um sjaldgæfa fugla á Islandi
(Gunnlaugur Pétursson og Kristinn H.
Skarphéðinsson 1983, Gunnlaugur Pét-
ursson og Erling Ólafsson 1984, 1985,
1986, 1988, 1989a, 1989b, Gunnlaugur
Pétursson, Gunnlaugur Þráinsson og Er-
ling Ólafsson 1991, 1992a, 1992b, 1993,
Gunnlaugur Þráinsson, Erling Ólafsson
og Gunnlaugur Pétursson 1994). Síðari
athuganir, frá 1981-1991, eru þó teknar
með í kortum og súluritum.
A Náttúrufræðistofnun íslands eru
varðveittir hamir nokkurra ískjóa og
Náttúrufræöingurinn 63 (3-4), bls. 253-273, 1993. 253