Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 165
Freysteinn Sigurðsson
Skýrsla um
Hið íslenska náttúruíræðifélag fyrir
árið 1992
FÉLAGAR
í árslok 1992 voru félagar og áskrifendur
Náttúrufræðingsins 1633. Hafði þeim fækk-
að um 64 á árinu. Heiðursfélagar voru 7 og
áttu þrír þeirra stórafmæli á milli ársfunda:
Einar B. Pálsson varð áttræður í febrúar,
Steindór Steindórsson varð níræður í ágúst
og Ingólfur Davíðsson varð níræður í janúar.
Kjörfélagar voru 5, ævifélagar 20 en al-
mennir félagar innanlands voru 1368. lnnan-
lands voru 135 stofnanir áskrifendur að
Náttúrufræðingnum, en 59 stofnanir og
félagsmenn voru erlendis. 7 félagsmenn
létust á árinu, 57 sögðu sig úr félaginu en 65
bættust við, þar af 39 á svokölluðum
skólakjörum (yngri en 24 ára, greiddu 2/3 ár-
gjalds). Vegna vanskila um árabil voru 62
strikaðir út af félagaskrá.
STJÓRN OG STARFSMENN
Á aðalfundi HÍN 29. febrúar 1992 voru
fráfarandi stjómarmenn og aðrir embættis-
menn félagsins allir endurkjömir. Stjóm fé-
lagsins var 1992 skipuð sem hér segir: For-
maður Freysteinn Sigurðsson, varaformaður
Hreggviður Norðdahl, gjaldkeri Ingólfur
Einarsson, ritari Gyða Helgadóttir, með-
stjórnandi Sigurður S. Snorrason. Varamenn
í stjóm voru Einar Egilsson og Þóra Elín
Guðjónsdóttir. Endurskoðendur voru
Magnús Árnason og Sveinn Ólafsson, en
varaendurskoðandi Ólafur Jónsson.
Fulltrúi HÍN í Fuglafriðunarnefnd var
Agnar Ingólfsson, prófessor, en fulltrúi í
Dýravemdunarnefnd var Sigurður H.
Richter, líffræðingur. Fulltrúar HÍN á aðal-
fundi samtakanna Landverndar vom Þor-
leifur Einarsson og Freysteinn Sigurðsson.
Framkvæmdastjóri félagsins var Gutt-
ormur Sigbjarnarson (síðan 1991), út-
breiðslustjóri var Erling Ólafsson en ritstjóri
Náttúrufræðingsins var Sigmundur Einars-
son (síðan 1991). Framkvæmdastjóri sá um
undirbúning að ferðum félagsins og fræðslu-
fundum, ritstjóm og útgáfu fréttabréfs, undir-
búning stjómarfunda, skrifstofuhald og
ýmislegan rekstur og erindi á vegum félags-
ins. Skrifstofa félagsins að Hlemmi 3 (hjá
Náttúrufræðistofnun lslands) var opin kl. 9-
12 á þriðjudögum og fímmtudögum flestar
vikur ársins.
Stjórnarfundir vom 8 á milli aðalfunda.
Gefín vom út 6 félagsbréf. Stjóm HIN sendi
um 90 aðilum jólakort með þökk fyrir sam-
skifti og fyrirgreiðslu á árinu, en sá siður var
tekinn upp fyrir jólin 1991.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur félagsins fyrir árið 1992 var
haldinn kl. 14 laugardaginn 20. febrúar 1993
í stofu 101 í Odda, Hugvísindahúsi Háskól-
ans. Fundarstjóri var kjörinn Amór Þórir
Sigfússon en fundarritari Guðrún Gísladóttir.
Fundinn sóttu 14 manns.
Dagskrá fundarins var með hefðbundnum
hætti: Formaður flutti skýrslu stjómar. Fram
kom að félagsmönnum og áskrifendum hefði
haldið áfram að fækka á árinu. Þó hefðu 39
félagsmenn bæst við á svonefndum skóla-
kjörum. Taldi fomiaður orsakir þessarar við-
varandi fækkunar einkum tvær. Annars vegar
væri ríkjandi samdráttarkennd í þjóðfélaginu,
en slíku fylgdi jaíhan fækkun félaga hjá HIN.
Hins vegar hefði útgáfa Náttúmfræðingsins
ekki gengið sem skyldi, en tímaritið væri
helsta þjónusta félagsins við þorra félags-
manna. Samdráttar gætti einnig í þátttöku á
fræðslulundum og í ferðum félagsins og væri
Náttúrufræðingurinn 63 (3-4), bls. 287-296, 1993.
287