Náttúrufræðingurinn - 1993, Blaðsíða 169
ritsins, a.m.k. að hluta til, og draga úr form-
festu við frágang slíkra greina. Á síðustu ára-
tugum hafa fagfélög náttúrufræðinga eflst, en
sérfræðilegar greinar birtast einkum í sér-
fræðitímaritum, stofnanaskýrslum og ráð-
stefnuritum. Því er ekki sama þörf á og áður
að HÍN efli sérstaklega náttúruvísindin sem
slík með útgáfu á hásérfræðilegu efni. Hins
vegar hefur mjög aukist þörfín á vönduðu
efni við hæfi almennings um náttúrufræði.
Gildir það jaíht fyrir stjómvaldsmenn,
embættismenn, ósérfróða náttúrufræðinga
sem aðra áhugamenn. í þann farveg þarf að
beina efni Náttúrufræðingsins í auknum
mæli.
Stjóm HÍN tilnefndi í nóvember í ritnefnd
og útgáfuráð. í ritnefnd vom tilnefnd: Áslaug
Helgadóttir grasafræðingur, formaður, Am-
þór Garðarsson dýrafræðingur, Ágúst
Kvaran 'efnafræðingur, Einar H. Guðmunds-
son stjameðlisfræðingur, Einar Sveinbjörns-
son veðurfræðingur, Guðrún Gísladóttir
landfræðingur, Hákon Aðalsteinsson vatna-
líffræðingur, Hrefna Sigurjónsdóttir líffræð-
ingur, Ingibjörg Kalddal jarðfræðingur,
Jakob K. Kristjánsson lífefnafræðingur,
Leifur A. Símonarson jarðfræðingur og
Ólafur Ástþórsson fiskifræðingur.
Hlutverk ritneíhdar er ætlað að vera efnis-
öflun, umfjöllun efnis og aðstoð við yfir-
lestur greina og aðrar faglegar hliðar á efni
tímaritsins. í útgáfuráð vom tilnefnd: Ámi
Hjartarson jarðfræðingur, Borgþór Magnús-
son grasafræðingur, Guðmundur V. Karls-
son kennari og leiðsögumaður og Marta
Ólafsdóttir kennari og líffræðingur
Utgáfuráð er nýlunda í útgáfustarfseminni.
Hlutverk þess er ætlað að vera aðstoð við
ritstjóra uni ritstefnu og útlitsmótun ritsins,
efnisval og uppsetningu, auk annarra atriða
sem tengjast útgáfunni sjálffi.
ÖNNUR SÝSLAN
Stjóm HÍN veitti að vanda umsögn um
ýmis lagafrumvörp um náttúrumál að beiðni
Alþingis. Má þar nefna fmmvörp um
Náttúrafræðistofnun íslands og náttúmffæði-
stofur; um dýravemd; um vemd, friðun og
veiðar á villtum fuglum og villtum spen-
dýmm, öðrum en hvölum; um umhverfismat;
um aðgang að upplýsingum um umhverfis-
mál og upplýsingamiðlun. Auk þess fýrir
umhverfísráðuneytið um náttúruvemd og
endurskoðun á lögum um Náttúravemdarráð.
Einnig fjallaði stjóm HIN um fyrirhugaða
Fljótsdalslínu og lagði í umsögn sinni áherslu
á nauðsyn hálendisskipulags til að tryggja
jafnvægi milli landnýtingar og landvemdar.
291