Samvinnan - 01.03.1926, Blaðsíða 19
S A M VI N N A N
13
verð samkepnismanna. Innstæðufé heildsölunnar hafði
vaxið um nær 6 miljónir og sjóðir hennar jukust gífur-
lega. Árásir andstæðinganna á innlánsstarfsemi kaupfé-
laganna virðast því hafa borið alt annan árangur, en til
var ætlast.
Velta kaupfélagsins í Stokkhólmi var 20 miljónir kr.
og hafði aukist um 3l/> miljón fyrra ár. Hefir það nú 110
útsöludeildir í borginni. Tekjuafgangur félagsins var ná-
lega 800 þús. kr. Tala félagsmanna var 28 þús. og hafði
þeim fjölgað um 4 þús. á árinu.
Samkepnismenn hófu harða sókn á heild-
Kornmylla söluna. Beittu þeir einkum vopnum sín-
sænsku heild- um gegn kornmyllu Sambandsins. Stærstu
sölunnar. kornmyllueigendur hafa bundist samtök-
um er átti að bola út allri samkepni. Vilja
þeir vera einráðir um framboð og verð á korni í Svíþjóð.
Reyndu þeir eftir mætti að sporna á móti mnflutningi
ódýrara korns frá Ameríku, og höfðu gert þannig samn-
;nga við marga kaupmenn, að þeir mættu ekki flytja inn
nema 5% af veltu sinni. Kornmylla sambandsins er þeim
þyrnir í augum. Viðskiftavelta hennar jókst dag frá degi
og tvívegis færði hún niður verðið. Varð „hringurinn“ að
neyðast til að gera hið gama. Eru kornmyllueigendur því
sárgramir, að það var heildsalan en ekki þeir, er síðastlið-
ið ár réðu mestu um verð á korni í Svíþjóð.
Samvinnufélögin þýsku vinna nú hröðum
Samvinnufélög skrefum aftur það, sem þau höfðu tapað
bænda vegna afleiðinga ófriðarins. Hefir kaupfé-
á þýskalandi. lögunum verið mikill stuðningur í því, að
meiri festa er komin á gjaldeyrir ríkisins.
Allmörg félög er urðu að hætta að starfa, hafa risið upp
aftur, og fjárhagur þeirra er að komast í betra horf.'Sam-
vinnufélög bænda voru 39,269 að tölu um áramót, og
hafði þeim fjölgað um rúmlega 1200 síðastliðið ár.
Einn af þektustu samvinnumönnum þjóðverja á yngri
árum, Fredrich Ebert forseti þýska ríkisins lést í vetur.
Hann beitti sér ungur fyrir samvinnumálum og vann mik-