Samvinnan - 01.03.1926, Blaðsíða 78
72
S AMVINNAN
Private Bills*). Með hinum fyrri er átt við þau frumvörp
er snerta almenning-sheill, ríkisheildina eða nýlendurnar.
„Private Bills“ eru aftur á móti frumvörp,sem snerta hags-
muni einstaklinga eða einstakra sveita og bæjarfélaga.
þau eru ekki flokksmál. Annars er oft erfitt að draga
skýra línu milli þessara tveggja tegunda af frumvörpum.
það er stjómarinnar verk og hefir mikla þýðingu, því
meðferð þeirra á þinginu er gagnólík.
þegar merkileg almenn frumvörp (Public Bills) eru
lögð fyrir þingið, þá eru þau fyrst rædd tvívegis á líkan
hátt og á Alþingi. Atkvæðagreiðsla fer ætíð fram við aðra
umræðu, og ef málið er kappsmál þá einnig vdð þriðju um-
ræðu, annars ekki. En eftir aðra umræðu „breytir þingið
sér í nefnd“ sem svo er kallað. þessi breyting er fólgdn í
því, að öllum hdnum gömlu og margbrotnu þingsköpum
er slept. Forsetinn (Speaker) víkur úr sæti og í stað hans
kemur formaður nefndarinnar, sem líka er fastur embætt-
ismaður þingsins. — Á þennan hátt er hægt að ræða mál-
in miklu ítarlegar en á vanalegum þingfundum. En í raun-
inni er þetta engin nefnd, því allir þingmenn eiga sæti í
henni**).
Nefndir í sama skilningi og á Alþingi tíðkast ekki í
Parlamentinu. Aftur á móti hafa menn á síðasta manns-
aldri tekið upp á því, að skipa fjórar fastar nefndir
„Standing Committées“ fyrir alt þingið. Ein af þessum
nefndum tekur til meðferðar öll þau mál er snerta Skot-
land og allir hinir skosku þingmenn eiga sæti í henni.
í hinum nefndunum sitja 60—80 kjömir þingmenn.
þessar nefndir eru einskonar þing út af fyrir sig. Fundir
eru haldnir fyrir opnum dyrum og þeir ráðherrar er málin
*) Má ekki blanda saman við „Private Members Bills", þ.
e. frumvörp frá einstökum þingmönnum, sem eru því nær horf-
in úr sögunni, eins og sagt verður síðar frá.
**) Á nefndafundum eru engar ákvarðanir teknar. Málin
eru aðeins rædd. Atkvæðagreiðsla fer fram á virkilegum þing-
fundum.