Samvinnan - 01.03.1926, Blaðsíða 20
14
S A M 1' 1 N N A N
ið að útbreiðslu kaupfélaganna. Honum hafði verið falin
mörg trúnaðarstörf fyrir samvinnufélögin, er hann rak
með alúð og dugnaði. Eftir að hann var kjörinn forseti
ríkisins sýndi hann við ýms tækifæri samúð sína með
samvinnustefnunni og skilning á gildi hennar.
í Póllandi hefir til skamms tíma verið
Pólsku sam- vöntun á náinni samvinnu milli kaupfélag-
vinnufélögin anna. J>au höfðu ekki gengið í eitt sam-
gera samband band, heldur voru dreifð innan átta minni
með sér. sambandsfélaga. Stjórn Alþjóðasambands-
ins og Charles Gide gengust fyrir því að
sameina aðalfélögin. Á fulltrúaráðsfundi í Varschau í
mars síðastliðnum var stofnað félag er nefnist „Samband
kaupfélaga lýðveldisins Póllands, og gengu fimm eldri sam-
bandsfél. inn í það. Er þess vænst að félög, er enn standa
fyrir utan muni brátt fylkja sér undir sama merki. Fé-
lagsstofnun þessi er glæsilegur sigur fyrir samvinnumenn
og merkur viðburður í sögu Póllands. Samvinna og bætt
skipulag á atvinnurekstri landsins er lífsskilyrði fyrir
hið unga ríki.
í Bandaríkjunum er ófrjó jörð fyrir sam-
Kaupfélög og vinnufélagsskap. Gróðahugur og sam-
samvinnu- kepnishvatir. eru ríkar í meðvitund allra
rjómabú í stétta. Auðmannasamtökin hafa staðið vel
Bandaríkjun- á verði fyrir allri samvinnu verkamanna
um. og bænda, og verið reiðubúnir til að kyrkja
í fæðingunni alla sjálfsbjargarviðleitni
samvinnumanna. Fyrstu kaupfélög voru þó stofnuð þar
um líkt leyti og hér í álfu. En þau áttu sér skamman ald-
ur. pau höfðu ekkert samband gert með sér til sameigin-
legra hagsbóta og varnar. Flest þeirra þoldu því ekki
óeðlilfega samkepni auðmanna, og komust í hendur kaup-
manna. Kaupfélög, er risið hafa upp í borgunum á síð-
ustu áratugum, hafa átt mjög erfitt uppdráttar, sökum
óeðlilegrar samkeppni og tómlætis almennings. Samvinnu-
rjómabúin eiga við líka örðugleika að etja. það starfa í
mörgum fylkjum fjöldi rjómabúa. Sum þeirra hafa náð