Samvinnan - 01.03.1926, Blaðsíða 24
Byggingar.
i.
Matur, föt og hús eru kallaðar þrjár höfuðnauðsynj-
ar siðaðra manna. í köldum löndum eru menn háðari þess-
um iskilyrðum en í mildari löndum. Kring um Miðjarðar-
hafið eru hús almennings næsta lítil og ómerkileg. Veður-
áttan er svo mild, að menn geta verið mikið af sólarhringn-
um undir berum himni. Af nýjatestamentinu má sjá að
Kristur og nánustu samtíðarmenn hans bjuggu í hús-
um, sem voru svo opin og lítið til vandað, að enginn mað-
ur gæti lifað í slíkum heimkynnum í köldum löndum.
því óblíðari sem veðuráttan er, því vandaðri og jafn-
framt dýrari þurfa húsin að vera, til þess að þeir sem í
þeim búa geti lifað þar heilsusamlegu lífi.
Hér á fslandi er veðuráttan þannig, að húsagerðin
er með afbrigðum dýr og vandasöm. Kuldar eru hér að
vísu minni en víða annarstaðar, en veðuráttan er geysilega
óstöðug og umhleypingasöm, úrkomur miklar, og fylgir
venjulega hvassviðri, sem þrýstir rigningarvatninu með
miklu afli inn í minstu sprungur á veggjum eða þökum.
þar 'Sem venjulega rignir í logni, reynir miklu minna á
mótstöðuafl bygginganna. Ein af ástæðunum til þess að
timburbyggingar endast miklu lengur í dölum til fjalla í
Noregi en hér á íslandi er einmitt sú, að þar er miklu
lygnara og regnið leitar minna inn í veggina heldur en
verður í hinum sífeldu umhleypingum hér á landi. Að
vísu er allmikill munur að þessu leyti á staðháttum á
landinu sunnan og vestanverðu, og á Norður- og Aust-
urlandi. þessvegna eru allar líkur til að byggingar hér á