Samvinnan - 01.03.1926, Blaðsíða 64
58
SAMVINNAN
mönnum efnalega auðvelt að leggja fram sinn skerf. Til-
lög félagsmann verða að vera svo lág, að fátækum mönn-
um sé eigi ofvaxið að inna þau af hendi. í kaupfélögum
um öll lönd er þessa gætt og innlög í stofnsjóð fáar krón-
ur á hvern félagsmann. Stofnsjóðurinn er það fé er félögin
fyrst fá til umráða, til greiðslu stofnkostnaðar og starf-
rækslu. Kaupfélögin hafa yfirburði í aðstöðu sinni, sem
eru þess eðlis, að þau komast af með minna handbært
veltufé en verslanir.
Félögin eiga fasta viðskiftavini, félagsmenn sína.
þeir eru félögunum trygging fyrir ákveðinni viðskifta-
veltu. Innkaupin miðast við þarfir félagsmanna. Vöru-
rýmun verður því minni og síður tap á gömlum vörum.
Við föst viðskifti félagsmanna ávaxtast og endurnýjast
veltuféð á skömmum tíma, jafnvel daglega, og þegar hönd
selur hendi bíða félögin engan halla af vanskilum manna.
Félögin þurfa því minna fé en kaupmenn til að standast
áhættu, þau komast hjá ýmsum útgjöldum er jafnan
leiða af samkepninni milli kaupmanna, t. d. til óhóflegra
skreytingu búða og auglýsinga, að mun. Kaupfélögin
þurfa þó meira fé til umráða en stofnsjóð, ef að þau eiga
að geta aukið veltu sína eftir þörfum, og náð eðlilegum
þroska. Skipulag þein-a gefur félagsmönnum kost á að
bæta sjálfir úr hinni eðlilegu vaxandi veltufjárþörf fé-
laganna. Rekstursfé félaganna ávaxtast af sjálfu sér, þeg-
ar félagsmenn geyma tekjuafgang sinn í sjóði hjá félögun-
um. 1 sumum löndum er þetta svo alment, að tekjuaf-
gangurinn einn fullnægir að miklu eða öllu leyti
veltufjárþörf félaganna. Kaupfélögin veita sparifé fé-
lagsmanna móttöku og ávaxta það í innlánsdeildum sín-
um. Fyrir félagsmenn er það hagkvæmt og ánægjulegt
að geta ávaxtað sparifé sitt í sínum eigin verslunum,
og vita að því verði varið til að efla andlegan þroska, og
bæta kjör þeirra er harðast verða úti í lífsbaráttunni.
Inneignir félagsmanna skiftast því í:
1) Inneign í stofnsjóði.
2) Tekjuafgang í sjóði félagsins.
3) Sparifé í innlánsdeild.