Samvinnan - 01.03.1926, Blaðsíða 62
56
SAMVINNAN
dlja starfa lengur að stefnumálum þeirra, og- hagsbótum
sínum á samvinnugrundvelli eða annara orsaka vegna,
segja sig úr þeim. Breyttar ytri kringumstæður, svo sem
burtflutningur af félagssvæðinu o. fl., hefir eðlilega oft í
för með sér að félagsmaður verður að segja sig úr félagi
sínu. þegar slíkt er eigi fyrir hendi,veldur úrsögnum venju-
legast ekki, að félagsmaður sjái sér réttilega haga í því
að skilja við félagið. Úrsagnir stafa einatt af áhrifum frá
andstæðingunum, er með rógburði hafa gert það tortryggi-
legt og auðtrúa félagsmenn fráhverfa því, eða jafnvel
neytt þá til að ganga úr félaginu. Kaupfélögin eiga það
sífelt á hættu, að andstæðingunum takist að tæla skilnings-
iitla og áhugalitla félagsmenn úr þeim, þótt þeir bíði beint
og óbeint tjón við að skilja við þau. Slíkir menn þurfa
sjálfs síns vegna dálítið aðhald og félögin verða að vera
við slíku búin. Eðlileg sjálfsvörn félaganna væri sú, að þau
áskildu sér rétt til að borga mönnum ekki út inneign þeirra
fyr en eftir ákveðinn tíma frá því er þeir segðu sig úr
félögunum. það leiðir einnig af anda samvinnunnar, að
félagsmenn geta ekki afsalað öðrum réttindum sín-
um í félaginu án samþykkis félagsstjómar. Starfsemi kaup-
félaganna hvílir fyrst og fremst á samúð og samvinnu
mannlegra vera, en ekki á fjármagni og gróða. þau verða
því í slíkum tilfellum, fyrst og fremst að taka tillit til
skilnings og áhuga nýrra félagsmanna fyrir hlutverki sam-
vinnunnar. Félagsmenn geta tekið út tekjuafgang og
sparifé í sjóði er þeir vilja, með stuttum fyrirvara,
og innstæðufé í stofnsjóði fá þeir greitt er þeir ganga úr
félögunum.
í fljótu bragði virðist, að það sé að tefla á tvær hætt-
ur með framtíð félaganna, að borga mönnum út inneignir
sínar um leið og þeir ganga úr þeim. Hvorki hlutafélög
né venjulegar lánsstofnanir hafa þorað að bera jafn mik-
ið traust til innstæðueigenda eða hluthafa eins og kaup-
félögin sýna félagsmönnum sínum. I hlutafélögum verða
hluthafar að selja hlutabréf sín, ef að þeir vilja losna við
félagið og ná fé sínu aftur, er þeir hafa lagt í fyrirtækið.