Samvinnan - 01.03.1926, Side 50
44
S A M V I N N A N
að skoðanir hans væru í fullu samræmi við veruleikann.
Bók hans vakti mikla athygli og aðdáun. Var henni tek-
ið tveim höndum af öllum þorra manna. Hún var þýdd á
-flestum tungumálum hér í álfu meðan hann lifði. Hon-
um til mikillar ánægju gætti brátt áhrifa hennar á skoð-
unarhátt ráðandi stétta.
Skapferli Adams Smith er lýst þannig: að hann hafi
verið maður rólyndur en tilfinningaríkur, tryggur og vin-
íastur og dulur í skapi. Frábitinn var hann öllu félagslífi,
og dró sig í hlé eftir bestu getu í samkvæmum. Við
fyrstu kynni þótti hann þur í bragði og fámáll. í fárra
vina hóp var hann kátur og aðlaðandi. Bjartsýnn var hann
á menn og málefni, og sínum nánustu sýndi hann frábæra
alúð og umhyggju. Brjóstgóður og viðkvæmur, hjálpaði
hann bágstöddum einatt fram yfir það er efni hans leyfðu.
Adam Smith var ógiftur alla æfi; bjó hann með móður
sinni meðan hún lifði, en misti hana nokkrum árum fyr-
ir dauða sinn. Adam Smith naut virðingar og samúðar
allra er þektu hann, sökun hans frábæru mannkosta. Hann
dó í júlí 1890.
Bók Adams Smith, þjóðarauðurinn (The wealth of
nations, er stytt úr titli bókarinnar: The inquiry into the
nature and causes of the wealth of nations), kom út 1776.
Enskt þjóðlíf stóð um þær mundir á gatnamótum. þróun
atvinnulífsins og nýjar hugsjónir höfðu veikt undirstöðu
æfagamallar landsmálastefnu og aldarháttar. Fram und-
an blasti við atvinnufrelsið og verksmiðjuiðnaðurinn, er
átti eftir að rífa niður til grunna máttarviði gamalla at-
vinnuhátta og byggja upp að nýju. Adam Smith skoðaði
hina frjálsu samkepnisstefnu frekar sem hugsjón en veru-
ieika í framtíðinni. þrátt fyrir framsýni hans og glögg-
skygni var honum hulið það sem framtíðin bar í skauti
sínu. Hann bjóst ekki við því, að hin frjálsa samkepni
myndi ná jafnföstum tökum og raun varð á. þegar James
Watt hafði í smíðum gufuvél sína fékk hann leyfi Adams
Smith til að vinna að uppgötvun sinni innan múra há-
skóla Edinborgar. Vart hefir Adam Smith þá grunað að