Samvinnan - 01.08.1970, Qupperneq 7
B Ú S L w 0 Ð
orðum spurningunum sem þú
varpar fram í bréfinu. Ég held því
fari f jarri, að saga Samvinnunnar
í núverandi mynd sé brátt öll, þó
kannski séu ekki á henni ýkja-
glögg merki framfara eða vaxtar
frá ári til árs. Ég vona að hún
sé enn að mótast og vaxa og þyk-
ist sjá á henni talsverðan mun
síðustu þrjú árin, síðan hún
breytti um búning. Og sá hlutur
er vís, að næg verða umræðu-
efnin til margra næstu árganga.
Hvort taka beri málin, sem rædd
eru hverju sinni, öðruvísi tökum
en gert hefur verið hingaðtil, er
fyllilega réttmæt og tímabær
spurning.
Vegna manneklu á ritstjórn
Samvinnunnar er ekki nema að
mjög takmörkuðu leyti hægt að
vinna efni ritsins þar — ég kemst
einfaldlega ekki yfir það með
greinasöfnun, prófarkalestri og
öðrum kvöðum, sem fylgja slíkri
útgáfu. Hinsvegar er mjög til
athugunar að fá starfshópa til að
vinna að rannsóknum tiltekinna
mála og undirbúa greinaflokka
um þau til prentunar, og hefur
þetta raunar þegar verið til um-
ræðu. Eins hefur Samvinnan
tryggt sér frumútgáfurétt á nið-
urstöðum ýmissa merkilegra fé-
lagslegra rannsókna, sem gerðar
hafa verið hérlendis í fyrsta sinn
í sögunni, og munu þær niður-
stöður birtast í einhverjum næstu
hefta.
Mér hefur ekki reynzt erfiðara
Hvíldarstóll
ný gerð
á snúningsfæti
með ruggu.
Póstsendum
myndalista
B Ú S L w 0 Ð
HUSGAGNAVERZLUN
VIÐ NÓATÚN — SlMI 18520
VIÐ GERUM MYNDAMÚTIN
FYRIR YÐUR
Fljót og góð afgreiðsla
PRENTMYNDASTOFA J.G.
Laugavegi 24 — Sími 25775
Prentmyndastofa
Laugavegi 24
Slmi 25775
Iðunnar
skór
að fá greinar í Samvinnuna en í
öndverðu, heldur öfugt: það virð-
ist verða æ auðveldara eftir því
sem frá líður, og i mörgum til-
vikum er beinlínis leitað til rits-
ins um birtingu greinaflokka um
tiltekin efni. Hinsvegar hefur les-
endabréfum farið sífækkandi,
einsog lesendur hafa væntanlega
orðið varir við, en við birtum
bókstaflega öll lesendabréf, sem
okkur berast, og jafnvel ein-
staka einkabréf til ritstjórans,
7