Samvinnan - 01.08.1970, Blaðsíða 24
Garðar Halldórsson:
Borgarlíf og
skipulag Reykjavíkur
Skipulag fyrir islendinga
Tækni fleygir fram, líf okkar
breytist, og umhverfi okkar tek-
ur stakkaskiptum. Þróunin er svo
ör, að áunnar og lærðar kenning-
ar tapa gildi sínu jafnvel á fáein-
um árum. Við erum ávallt að
leita þess, er réttara eða full-
komnara reynist. — Þannig er
aðstaðan í málum skipulags og
íbúðarmótunar, að vegna breyttra
forsendna getur það, sem fyrr
þótti gott, í dag verið úrelt eða
jafnvel valdið skaða.
Frá fyrstu tíð borgarmenning-
ar hafa menn fengizt við skipu-
lag. Við gerð þess hefur um ald-
irnar verið stefnt að misjöfnum
markmiðum. Lengi var skipulag
borga háð varnaraðferðum í
styrjöld. Lengi var stéttaskipting
forsenda skipulags, og oftsinnis
hefur glæsileiki og sýndar-
mennska ráðið mótun skipulags.
Nú á seinni árum, eða eftir fyrri
heimsstyrjöld, komu svo t. d.
fram skipulagshugmyndir, er
miðuðu að útrýmingu fátækra-
hverfa, að loftræstingu til heilsu-
bótar, en samfara því hefur úti-
vistarsvæðiskenningum mjög ver-
ið haldið á loft. Hin síðustu árin,
og til þessa dags, hafa svo bif-
reiða- og flutningavandamálin
tröllriðið borgarskipulagi menn-
ingarþjóða.
Skipulagshugmyndir þær, sem
ég hef nefnt, eins og ótal margar
aðrar, hafa byggzt á forsendum
þeirra tíma, er þær mynduðust á.
Sum atriði þeirra geta verið lær-
dómsrík eða til eftirbreytni, en
í heild eiga þær aðeins fullan
rétt á sér við þær aðstæður, sem
mynduðu þær. Ef við notum slík-
ar hugmyndir ómeltar hér á ís-
landi er aðeins um hreina eftir-
öpun að ræða. En þurfum við þá
frábrugðið skipulag fyrir íslend-
inga? Já, vissulega þurfum við
skipulag, sem aðlagað er íslenzk-
um aðstæðum, t. d. veðurfari, at-
hafnalífi og þjóðfélagsuppbygg-
ingu. Það er mjög útbreiddur
misskilningur, að borgarskipulag
sé aðeins unnið á teikniborði, en
svo á alls ekki að vera, því for-
senda fyrir vel hugsuðu skipulagi
er samvinna t. d. arkitekta, verk-
fræðinga, þjóðfélagsfræðinga,
sálfræðinga, veðurfræðinga og
náttúrufræðinga.
Þar sem Reykjavík, eða höfuð-
borgarsvæðið, er eina raunveru-
lega borgin hér á landi, munu
skrif mín mest tengjast því svæði,
þeim vandamálum sem þar eru
að myndast og þeim hugmyndum
sem þar þarf að gefa gaum. Ég
tel, að við verðum á næstu árum
að leggja síaukna áherzlu á að
samræma í Reykjavík aðstöðu til
einveru í nánum og mjög auknum
tengslum við samfélagsaðstöðu.
Við verðum að gæta þess, að borg-
arlífið stuðli að því, að við séum
menningarlegir gefendur en ekki
aðeins þiggjendur, og því verð-
um við með uppbyggingu snerti-
punkta að auka félagsleg sam-
skipti okkar. En til þess að svo
megi verða, tel ég, að við verð-
um að þétta byggðina til muna,
og mun ég hér á eftir draga fram
atriði til stuðnings slagorðinu
„þéttari byggð“.
Hvorki kostir borgarlífs né sveita-
líi's í dreifbyggðri borg
Borg er rammi um líf okkar,
sem þar lifum, og hefur því sí-
felld áhrif á skapgerð okkar, upp-
eldi, þroska og athafnir. Umhverf-
ið á að stuðla að vellíðan okkar
og veita okkur ánægju til starfa
sem hvíldar. Við verðum því að
skapa þann ramma, sem veitir
okkur möguleika á að lifa fjöl-
breyttu lífi, án óæskilegra
árekstra við þá aðra, sem eru
með okkur í umhverfinu og eru
okkur nauðsynlegir félagslega
sem og starfslega.
Reynsla annarra þjóða hefur
nú þegar sýnt, að hugmyndir um
að skipta borgum í ákveðin að-
skilin aðalsvæði, eins og íbúðar-
svæði, vinnusvæði, verzlunar-
svæði, útivistarsvæði og umferð-
arsvæði, geta haft mjög lamandi
áhrif á allt borgarlíf. Snertipunkt-
arnir geta orðið of fáir. Æskileg-
ast væri fyrir okkur að tengja
þessi svæði sem mest saman, eða
flétta þeim innan um hvert ann-
að, þannig að lifandi samtenging
geri heild eða borg úr svæðunum.
Sé að þessu hugað, minnkar t. d.
álag á umferðaræðum, og miklar
umferðaræðar geta að vísu flýtt
fyrir bifreiðaumferð, en auk þess
að vera dýrar hafa þær þann ann-
an aðalókost, að þær hindra fé-
i T?.
Yjirbyggð ytri rými cru jorsenda fjölskrúðugra þjónustukjarna.
Milli þessara íbúðarhúsa, scm ajmarka bandkjarna á tvcer hliðar, skapast jjól-
brcytt ytri rými, scm örva tilfinningu verndar og öryggis.
H Jj 1
ii i É
h j j
Ilabitat. 67 á heimssýningunni í Montreal er skemmtilcgt dœmi um ajmörkuð
einstaklingsrými í þéttbýli.
24