Samvinnan - 01.04.1972, Qupperneq 29

Samvinnan - 01.04.1972, Qupperneq 29
7/> AV SAMVINNA Sigurður Markússon: Einfaldir hlutir Þegar maður virðir fyrir sér ýmsa þá lauka, sem fegurstir spretta í garði ís- lenzkrar stjórnsýslu, þá hlýtur maður um leið að furða sig á því að þau tvö orð, sem greinarkorn þetta hefur að yfirskrift, skuli ekki fyrir löngu brott fallin úr ís- lenzku máli af brúkunarleysinu einu saman. Menn greinir ekki á um nauðsyn þess, að lagður verði vegur yfir Skeiðarársand, að keyptir verði 42 skuttogarar, að öll frystihús landsins verði flísalögð, en næsta nágrenni þeirra asfalterað, að reynt sé að hefta uppblástur landsins, að sveitarstjórnarmenn haldi lágmark fjór- ar stórráðstefnur í Reykjavík á ári, að komið verði í veg fyrir frekari mengun lofts og lagar, að fallvötnin verði virkjuð, ef ekki nyrðra, þá syðra; mætti svo lengi fram halda upptalningu þeirra þjóðþrifa- mála, sem enginn sæmilega greindur maður leyfir sér að mæla í mót. Hér tíðkast félög eins og hrossaræktar- félög, skógræktarfélög, leikfélög, lestrar- félög, félög til að gangast fyrir virkjun- um, félög til að standa á móti virkjunum, félög til þessa og félög til hins, þar sem hinir ágætustu menn hafa svarizt í fóst- bræðralag til þess að veita einhverju til- teknu máli þann stuðning, er þeir telja það verðskulda. Mengun kerfisins Mengun er hið mikla tízkuorð — menn ræða um mengun í sjó og mengun í lofti, og þeir sem eru félagslega sinnaðir tala jafnvel um mengun hugans. En í öllu mengunarmálæðinu hefur mönnum með öllu sézt yfir þá tegund mengunar, sem er allri annarri mengun verri, en það er mengun kerfisins. Mengun kerfisins lýsir sér í því, að hlut- ir, sem í eðli sínu eru einfaldir og að- gengilegir, eru gerðir flóknir og óaðgengi- legir. Þess vegna er því beint til okkar ágætu félagshyggjumanna, að til viðbót- ar við öll hin félögin stofni þeir nú loks það félag, sem of lengi hefur óstofnað beðið síns tíma, en það er félag til að gangast fyrir einföldun hlutanna. Þar er á ferðinni málefni, sem hlýtur að eiga vísan stuðning allra góðra manna ekki síður en þau þjóðþrifamál, sem áður voru upp talin. Mengun kerfisins er illa áþreifanlegt fyrirbæri. Hún læðist að manni eins og kolsýringur í andrúmsloftinu. Hún slævir getuna til skarprar hugsunar. Hennar vegna hefur mörgu göfugu málefni verið stefnt í tvísýnu og jafnvel í beinan voða. Fyrir hennar tilverknað hefur margur góður drengur eytt starfsævi sinni á ref- ilstigum. Mengun kerfisins er eins og sjúkdómur. Fyrstu einkennin eru oft óglögg, og stundum getur rétt meðhöndlun á byrj- unarstigi náð að hefta frekari útbreiðslu. En því miður er hitt algengara, að við- námsþrekið slævist, strax eftir fyrstu sýk- ingu, og þá er ekki að sökum að spyrja: fyrr en varir er sjúkdómurinn kominn á það stig, að ekki verður við neitt ráðið. Mengun kerfisins má sjálfsagt skýr- greina á ýmsa vegu. Mér virðist hún að jafnaði lýsa sér í því, að settar eru reglur, sem við nánari skoðun sýna sig að vera illa eða ekki framkvæmanlegar. Sumpart fá þær ekki staðizt vegna þess að þær stríða á móti rökréttri hugsun og al- mennri skynsemi, sumpart vegna þess að á framkvæmd þeirra eru tæknilegir ann- markar, sem mönnum hefur sézt yfir, er reglurnar voru settar. Þá má nefna þær reglur, sem leiða borgarann í þvilíka freistni, að varla getur talizt forsvaran- legt í kristilegu þjóðfélagi. Loks eru þær reglur, sem varla eru til annars en að hlæja að þeim, en valda allt um það sóun á tíma og fjármunum borgaranna og þar með þjóðhagslegu tjóni. Mér virðist, að þá sé mest hætta á ferð- um, þegar einn setur þær reglur, sem öðr- um ber að fara eftir. Þess vegna held ég að ekki leiki á tveim tungum, að mengun kerfisins sé mun meira áberandi i opin- berri og hálfopinberri stjórnsýslu heldur en t. d. í þeirri stjórnsýslu atvinnulífsins, sem snýr inn á við að því sjálfu. Það þröngvar mönnum til skynsemi, þegar erfitt er um vik að láta aðra súpa seyðið af vitleysunni. í gamalli enskri sögu segir frá konu, er vildi ala börn sín vel upp, og hafði þá jafnan að orðtaki: do not as I do, do as I say — gerðu ekki eins og ég geri, gerðu eins og ég segi. Oft virðist þetta vera 29
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.