Samvinnan - 01.04.1972, Blaðsíða 61
á pönnu við fremur vægan hita, hellið eggjahrærunni á og látið síld,
radísur og dill yfir þegar kakan er hálfbökuð. Ath. að baka eggjakökur
ekki of lengi; þá verða þær þurrar. Borin fram með soðnum kartöflum
og/eða rúgbrauði.
FLJÓTLEGIR ÁBÆTISRÉTTIR
Algengast er að bera niðursoðna ávexti fram með þeyttum rjóma, en
rjómann má bragðbæta t. d. á eftirfarandi vegu:
Jarðarber með líkjörkremi
2 eggjarauöur
3 msk flórsykur
2% dl rjómi
%—% tsk vanilla
lYz msk líkjör eða sherry
Þeytið eggjarauður og sigtaðan flórsykur vel saman. Blandið þeyttum
rjómanum saman við ásamt kornum úr hálfri vanillustöng eða dropum
og líkjör eða sherry. Borið fram ný tilbúið með niðursoðnum jarðar-
berjum, ávaxtasalati eða ávaxtahlaupi.
Ananashrísgrjón
1 dl hrísgrjón
2—3 dl vatn
3 dl rjómi
sykur, súkkulaði
Sjóðið hrísgrjónin og kælið eða notið afgang af soðnum hrísgrjóna-
graut. Blandið hrísgrjónunum saman við þeytta rjómann og bætið
með sykri, súkkulaðibitum og smátt brytjuðum ananas. Skreytt með
ananas, rifnu súkkulaði og t. d. grænum vínberjum. Borið fram vel kælt.
Ferskjur með makkarónurjóma
2 dl rjómi
75 g möndlumakkarónur (eða kókósmakkarónur)
saxaðar hnetur
Myljið makkarónukökurnar og blandið þeim saman við þeyttan rjóm-
ann ásamt rifnu súkkulaði. Stráið söxuðum hnetum yfir. Kælið og berið
fram með niðursoðnum ferskjum.
Melóna meS salati
Þvoið melónuna og skerið sneið af öðrum endanum með takkaskurði.
Holið melónuna innan og fjarlægið steinana. Skerið melónukjötið
í bita, einnig banana, epli og appelsínur, bragðbætið með ávaxtasafa og
sykri ef vill. Skerið af melónukörfunni svo að hún verði stöðugri á fat-
inu, fyllið hana með ávaxtasalatinu og leggið lokið yfir.
Skreytið með vínberjaklösum.
Kókóskaka meS appelsínukremi
2 egg
2 dl sykur
150 g smjörlíki (brœtt)
2 dl hveiti
% tsk lyftiduft
2 dl kókósmjöl
Þeytið egg og sykur mjög vel saman. Blandið síðan bræddu smjörlíkinu,
sigtuðu hveitinu, lyftiduftinu og kókósmjölinu varlega saman við.
Skiptið deiginu í tvö tertumót (smyrjið þau vel og stráið hveiti í þau)
og bakið í um 15 min. neðarlega í ofninum við um 200 gráðu hita.
Losið botna strax úr mótinu og brjótið súkkulaði yfir annan, þ. e.
áleggssúkkulaði, hjúpsúkkulaði eða suðusúkkulaði (um 50 grömm).
Smyrjið súkkulaðinu yfir um leið og það fer að bráðna.
Leggið kalda botnana síðan saman með appelsínukremi.
Appelsínukrem
1 egg
2 msk sykur
1 dl appelsínusafi
3 blöð matarlim
2 dl rjómi
Leggið matarlímið í bleyti og bræðið yfir gufu. Þeytið egg og sykur
vel saman. Þeytið rjómann (linþeytið). Kælið matarlimið með appel-
sínusafanum, hrærið því varlega saman við eggin og þegar það fer að
þykkna, þeytta rjómann. Bragðbætið með sykri og 1 msk af sítrónu-
safa ef vill. Einnig er gott að setja smátt skorna appelsínu eða 2—3
msk af söxuðu súkkulaði í kremið. Þegar kremið er orðið hæfilega
þykkt eru botnarnir lagðir saman með því.
Ath.: Kakan þarf að bíða í nokkrar klst. með kreminu áður en hún
er borin fram.
Súrmjólkurkaka
4 egg
3 dl sykur
rijið hýði af einni sítrónu
100 g smjörlíki (brætt)
2 msk súkkat
3 msk rúsínur
(3 msk saxaðar hnetur)
2 tsk vanilludropar
4 dl hveiti
1 tsk lyftiduft
2 dl súrmjólk
Stífþeytið hvíturnar og þeytið þær síðan með sykrinum. Blandið síðan
bræddu smjörlíki og eggjarauðum varlega saman við. Sigtið hveiti og
lyftiduft og hrærið því varlega saman við ásamt súrmjólkinni og van-
illunni. Ath. að ef kakan ér hrærð of lengi með hveitinu verður hún
seig. Bakið deigið í vel smurðu móti (deigið má ekki ná nema til hálfs
í mótinu) neðst í ofninum við 175 gráðu hita í rúmlega eina klst. Aukið
strauminn aðeins síðustu mínúturnar ef kakan er ekki fullbökuð að ofan.
Súkkulaðibitar
200 g hveiti
50 g kakó
1 tsk sódaduft (natron)
250 g sykur
2 tsk vanillusykur eða dropar
100 g smjörlíki
2% dl mjólk
3 egg
Hrærið smjörlíkið lint. Sigtið hveiti, kakó, sódaduft og vanillusykur.
Bætið síðan mjólkinni og smjörinu smátt og smátt saman við og hrærið
í 2 mínútur. Þeytið eggin og hrærið deigið með þeim í 2 mín.
Látið deigið í vel smurt ferkantað mót. Hæfilegt er að baka tvöfalda
uppskriftina í ofnskúffu (venjuleg stærð). Bakið síðan kökuna neðar-
lega í ofninum við um 175 gráðu hita í um 30—35 mín.
Kakan er hjúpuð með bræddu súkkulaði eða flórsykurbráð og ef vill
klofin í sundur og lögð saman með sýrðum rjóma, aprikósumauki eða
kaffikremi (mokkakremi).
Einnig má skera nýbakaða kalda kökuna strax í bita sem síðan eru
hjúpáðir með súkkulaði eða flórsykurbráð og skreyttir með t. d. möndl-
um, perubátum eða mandarínum. Þannig er tilvalið að bera kökuna
fram, t. d. í barnaafmæli.
61