Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1982, Page 44

Andvari - 01.01.1982, Page 44
42 TONNES KLEBERG ANDVARI Englendinginn af öðrum til ferðar hingað“. Danska sagnaskáldið H. C. Ander- sen, er kom til Uppsala þrisvar á ævinni, sá einn júlídag 1849 ,,hinn fræga Codex Argenteus, þýðingu guðspjallanna fjögurra“, en ,,af gull- og silfur- bókstöfum hans ljómar á hinum rauðu pergamentsblöðum“. Codex Argenteus hefur að vonum verið virtur um alla aðra dýrgripi fram í bókasafni því, er hlotnaðist að veita viðtöku hinni stórkostlegu gjöf Magnusar De la Gardie. Það hefur þó ekki komið í veg fyrir, að hann hefur tvisvar verið hætt kominn, a. m. k. í annað skiptið svo mjög, að örlagaríkt tjón hefði hæg- lega getað af hlotizt. Emhvern tíma þegar á 8. tug 17. aldar hefur skjalafalsari nokkur verið að verki. Hann hefur með því að skafa út og mála að nýju í silfurlit freistað nokkurra textahreytinga, er greinilega hefur verið ætlað að verða til fram- dráttar sumum kenninaum Olofs Rudbeeks, sprottnum af metnaði fyrir hönd Svía. Olof Rudbeck siálfur ætti þó að vera hafinn yfir allan grun. Fölsunin var í siálfu sér mjög ískyggilegt tilræði við handritið. En miklu alvarlegra var þó það tjón, sem uppgötvað var 1834 og hæglega hefði getað orðið óbætanlegt. Þýzki fræðimaðurinn Julius Löbe heimsótti Uppsali um sumarið þetta ár vegna undirbúnings útgáfu alls gotneska biblíuefnisins. Þá urðu menn þess varir sér til skelfingar, að tíu blöð handritsins voru horfin sporlaust. Öll leit reyndist lengi árangurslaus. Týndu blöðin komu ekki fram fyrr en í janúar 1857. Húsvörður bókasafnsins, þá helsjúkur orðinn, afhenti Anders Uppström dósent blöðin, en ég vík síðar að þætti hans í útgáfu biblíuþýðingarinnar. Húsvörðurinn hafði sennilega 25 árum áður tekið blöð- 'n ófrjálsri hendi, að því er nú verður frekast ætlað. Við eigum eflaust Upp- ström það að þakka, að týndu blöðunum var skilað og þau komust aftur á sinn fyrri stað í bókinni. Áður hefur verið minnzt á tvær elztu útgáfur Codex Argenteus: fyrstu út- gáfuna (1665), er Franciscus Junius annaðist, og ,,þjóðræknis“-útgáfa Georgs Stiernhielms (1671). Á því eru ekki tök að fjalla hér nákvæmlega um allar þær textaútgáfur, sem birzt hafa á þeim öldum, sem síðan eru liðnar. Fyrsta stórskrefið fram á við var stigið með hinni þörfu útgáfu Erics Benzeliusar bókavarðar og loks erkibiskups, er hann tók að vinna að þegar í upphafi 18. aldar, en prentuð var eftir hans dag í Oxford 1750. Þar eru margir textastaðir leiðrcítir og aðrir lesnir, sem Junius réð ekki við. Margt lá þó enn eftir óráðið. Hinn slyngi málfræðingur Johan Ihre og lærisveinn hans, Eric Sotberg, hrundu verkinu enn lengra áleiðis, einkum tókst hinum síðarnefnda og yngra þeirra að ráða af skarpskyggni sinni langa kafla handritsins, sem höfðu ekki fyrr verið lesnir. Ihre hélt fram þeirri röngu, en lífseigu kenningu, að bókstafirnir hefðu verið brenndir inn í pergamentið með heitum stimplum, en væru ekki handa- verk listaskrifara. Sotberg kynnti hinar nýju textaráðningar sínar í tveimur háskólaritgerðum, sem hann nefndi „Ulphilas illustratus“ og reifaði undir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.