Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2000, Page 74

Andvari - 01.01.2000, Page 74
72 GUNNAR KRISTJÁNSSON ANDVARI Friðrik Friðriksson (1868-1961) stofnandi KFUM og dómkirkjuprestarnir séra Jóhann Þorkelsson og séra Bjarni Jónsson. Trúardeilur meðal íslend- inga í Vesturheimi um gömlu guðfræðina og nýju guðfræðina voru afar harðar og höfðu áhrif hér á landi. Þannig má segja í sem stystu máli að öldin hafi byrjað í kirkjunni. Með hörðum átökum milli íhaldssamra og framsækinna guðfræðinga. Átökin voru reyndar ekki aðeins meðal presta; sterkar og vaxandi leik- mannahreyfingar innan kirkjunnar höfðu mikil áhrif, þær voru undir áhrif- um frá danska og norska heimatrúboðinu, m. a. KFUM. Þá voru stofnuð tvö félög, sem undirstrikuðu þann klofning sem kominn var upp í kirkj- unni, annað var Bræðralag, kristilegt félag stúdenta, stofnað 1945 á heimili Ásmundar Guðmundssonar. Hitt var Samtök játningatrúrra presta, stofnað 1948 að frumkvæði séra Sigurjóns Þ. Árnasonar og Jóhanns Hannessonar. En um hvað snerist nýguðfræðin? Þýska nýguðfræðin var róttæk umbóta- stefna, sprottin úr jarðvegi upplýsingarstefnunnar. Nýjar aðferðir og viðhorf í biblíurannsóknum settu svip á nýguðfræðina. Biblían er safn rita, langra og stuttra og höfundar þeirra heimildaritendur, ýmsum takmörkunum háðir, svo sem eigin heimsmynd, lífsviðhorfum og mannskilningi. Þessi viðhorf voru vissulega til góðs. Annað sterkt einkenni á nýguðfræðinni var fráhvarf frá játningunum en þess í stað meiri áhersla og áhugi á reynslu manna og breytni og þar með siðfræði. Harnack sjálfur ritaði mikið og fræðilegt verk um sögu kirkjukenninganna sem enn er í fullu gildi. Ekki verður annað sagt en þetta viðhorf nýguðfræðinnar hafi verið tímabært þótt vanmat margra guðfræðinga stefnunnar á játningunum hafi verið um of. Þriðja atriðið sem einkennir ný- guðfræðina er bjartsýn söguskoðun og mannskilningur. Maðurinn er góður í eðli sínu og allt fer vel að lokum, guðsríki var að hennar skilningi eitt megin- atriðið í boðskap Jesú og innan skamms mun það renna upp hér á jörð. í stað játninganna leitaði nýguðfræðin til upprunans: til Jesú sjálfs. Harnack og þar með frjálslynd guðfræði aldamótanna vildi komast aftur fyrir hina kirkjulegu guðfræði og leita til hins upprunalega kristindóms Jesú sjálfs og jafnframt til samtímans eða því sem næst, til siðfræði Kants og annarra þýskra heimspek- ingaý Heimsstyrjaldirnar gerðu hinn bjartsýna mannskilning nýguðfræðinnar óraunsæjan í margra augum. Þegar leið á öldina festist frjálslynda guðfræðin í sessi. Áhrif hennar sóttu á og þjóðin tók henni vel, hún var jákvæð, bjartsýn og góðviljuð og hæfði vel þjóð á framfaratímum. Það er svo annað mál að frjálslynda guð- fræðin rann ekki mildilega í einum farvegi heldur voru þar ýmsir straumar og væringar komu upp meðal frjálslyndu guðfræðinganna. Upp kom deila milli Jóns Helgasonar og Haralds Níelssonar, m. a. um sálarrannsóknir en Haraldur var einn helsti hvatamaður að sálarrannsóknum hér á landi. Spír- itisminn setti svip sinn á kirkjulega umræðu áratugum saman. Svo var ekki
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.