Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2005, Page 11

Andvari - 01.01.2005, Page 11
ANDVARI FRÁ RITSTJÓRA 9 bjartsýna trú á framtíðina. Slrkt vilja allir heyra og ef öðrum sjónarmiðum er hreyft er það talið vera íhaldssemi, svartsýni og nöldur. En eitt ætti að vera óhætt að nefna: Iðkun húmanískra mennta er komin undir rækt við móður- málið. Án markvissrar ræktunar móðurmálsins, í ræðu og riti, er hætt við að þessi fræði lúti í lægra haldi, þoki út í hom, verði jafnvel í augum samtíma markaðsfræðinga einkum dýrt sport og þýðingarlaust. Þá verða hugvísinda- menn að réttlæta tilveru sína andspænis talsmönnum hagnýtra fræða. Slfkt hefði ekki hugnast Þórami Bjömssyni. Islenskan er að breytast svo ört að áhyggjur vekur, framrás enskunnar svo straumþung á öllum sviðum að ef ekki verður við spomað getur óbætanlegt menningarslys orðið. Við of miklar málbreytingar kunna tengslin við fortíð- ina, það sem ort hefur verið og skrifað á íslensku á fyrri öldum, að rofna. Á þetta hefur Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti íslands, verið óþreyt- andi að benda, meðal annars í ræðu á Hólahátíð 2005 þar sem hún sagði í þessu sambandi: „Það má heldur ekki fram hjá okkur fara að fjöldinn allur af orðatiltækjum er að glatast úr hugum fólks, orðatiltæki sem eru svo und- urfalleg og lýsandi fyrir íslenska tungu.“ Hún hvatti til þess að sérstökum kennslustundum yrði komið á til að bregðast við þessari þróun. I Morgunblaðinu 16. ágúst 2005, þar sem vitnað er í orð Vigdísar, er einnig vísað til þess að íslenskukennarar og fræðimenn staðfesti orð hennar. Þetta fólk segir þverrandi orðaforða vera afleiðingu síminnkandi lesturs barna á bókmenntum og lengri textum. Þau lesa einkum af tölvuskjám og skrifa sms-skilaboð. Slíkt eykur ekki skilning á hefðbundnum textum, heldur hefur lesskilningur barna farið þverrandi. „Eg rekst á æ fleiri nemendur sem aldrei hafa lesið bók þegar þeir koma í framhaldsskóla,“ segir Halla Kjartansdóttir, íslenskukennari í Menntaskólanum við Sund, og hún bætir við: „Það er eitt- hvað að breytast og lesskilningi unglinganna hefur hrakað að undanförnu. Skilningi á fomsögunum og hæfninni til að lesa þær hefur t. d. hrakað mikið undanfarin ár. Þá kemur þessi þróun fram í ritsmíðum nemendanna. Þeir virðast eiga í meiri erfiðleikum með að skrifa lengri texta og halda röklegum þræði í gegnum ritsmíðamar.“ Og niðurstaða Höllu er sú að stytting náms til stúdentsprófs sé glapræði. „Við þurfum að bæta í. Það þarf stórátak í íslensku- kennslu.“ Auðvitað eru skiptar skoðanir um hvemig brugðist skuli við þessum vanda. Svo mikið er búið að tala um fomeskjulega íslenskukennslu sem valdi málótta og annarri óáran hjá nemendum, að margir vilja slá undan og leitast við að nálgast nemendur á þeirra forsendum. En ekki eru allir kennarar á því að sú leið sé heillavænleg. Inga Rósa Þórðardóttir, íslenskukennari við Foldaskóla, segir í sama Morgunblaði: „Ég hef áhyggjur af undanláts-stefn- unni sem ég heyri æ fleiri halda á lofti. Það sem áður var kallað villa er nú kallað þróun. Og þessi þróun er eins konar skrímsli sem enginn virðist vilja
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.