Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2005, Page 123

Andvari - 01.01.2005, Page 123
ANDVARI UPPSPRETTUR TÍMANS OG VATNSINS 121 dirfsku skáldsins, en kallaði bókina „tilraun“, Vennberg lofaði „eldfjallabál mikillar ljóðlistar", en neikvæðari þóttu orð hans: „ljóðrænar kjarnorku- sprengingar“. En þessir ritdómar urðu þó til þess að Lindegren fékk starf sem ritdómari víða, einnig þýddi hann töluvert á þessum árum, m.a. Paul Valéry, Faulkner og T.S. Eliot. Smám saman vann bókin á, og 1946 var hún endur- útgefin af höfuðforlagi Svía, Bonnier. Göransson segir (bls. 227): að bókin sé eitt sérstæðasta ljóðasafn sænskrar tungu, og jafnframt eitt hið mikilvæg- asta. Á næstu árum eftir útkomu bókarinnar hafi ungt bókmenntafólk gripið hana sem túlkun á reynslu kynslóðar sinnar. Sjaldan hafi hún verið stæld, en óbeint hafi ljóðstíll hennar og afstaða („ideologiska hállning“) haft víðtæk áhrif. Eftir það birti Lindegren ljóð um einstök surrealísk málverk í bók um slíka málara, Halmstadgruppen, en fæst þeirra ljóða þóttu verð að komast með í ljóðasafn hans síðar. Sama ár, 1947, birtist svo ljóðabók hans, Sviter, en loks Vinterojfer 1954. Einungis þessar þrjár síðustu bækur eru í ljóðasafni Lindegrens. Göransson (bls. 230) gerir ráð fyrir að hann hafi ekki ort síðasta hálfan annan áratuginn, því hann hafi alltaf leitað nýrra leiða, þegar hann þóttist kominn eins langt og hann gat á tiltekinni leið, sú fullkomnunarhneigð hafi loks leitt hann til þagnar. Hvað sem því líður, varðar það ekki þessa umfjöllun, sem snertir eingöngu mannen utan vág. Peter Hallberg fjallar um þennan ljóðabálk í einum kafla síns mikla verks Diktens bildsprák, 1982. Hann gerir fyrst (bls. 522 o.áfr.) grein fyrir umfangi ljóðabálksins og formi3. Hann skiptist í 40 ljóð. Hvert þeirra er sjö línupör, þetta eru þá einskonar sónhendur, en með óvenjulegri uppsetningu þó, því venjan er annaðhvort tvö fjögurra lína erindi og tvö þriggja lína (ítalskar són- hendur), eða þrjú fjögurra lína erindi auk línupars (Shakespeare-sónhendur). Hér eru ljóðlínur auk þess mjög mislangar, allt frá 11 atkvæðum upp í 17. Ekki er endarím, og hrynjandi er óregluleg, svo kalla mætti ljóðabálkinn lausamál gætt hrynjandi, segir Hallberg (s.st.) en þeirri lýsingu andmælir Göransson (bls. 228), og segir að Lindegren hafi einmitt risið gegn slíku, sem tíðkast hafði á 4. áratugnum í Svíþjóð, en í því hafi Arthur Lundkvist verið fremstur. Nokkuð ber á stuðlun og endurtekningum á orðskipan, auk þess sem fyrir kemur að sama sérhljóð ríki í áhersluatkvæðum flestra orða í línupari. Setningaskipan er jafnan eins og í venjulegu máli, en gegn þessari reglufestu kemur sundrað myndmál (Göransson, 227). Fyrirmynd þessa sér- stæða sónhenduforms var ljóðabálkur eftir Englendinginn Lawrence Durrel, segir Göransson (bls. 228). Ekki sé ég þó annan svip en að nokkur kvæða Durrels eru sett upp í línupör. Linder (bls. 839) nefnir Dylan Thomas sem fyr- irmynd Lindegrens í þessu formi. Og eins og vikið verður að síðar, líkist bæði bragarháttur og Ijóðmál mannen utan vág sónhendusyrpu eftir Thomas. Hallberg segir (bls. 524-5) að svo njörvað sem form mannen utan vág megi þykja, þá sé erfitt að ná merkingarlegu samhengi í því, andstæð fyrir-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.