Andvari - 01.01.1945, Blaðsíða 14
10
Alexander Jóhannesson
ANDVAIU
sérþrenta, og má þar nefna ritgerðir um Bjarna Thoraren-
sen, Sigurð Breiðfjörð, Jónas Hallgrímsson, Jón Thoroddsen,
Benedikt Gröndal, Gísla Brynjúlfsson, um Matthías Jochums-
son sjötugan (í afmælisritinu 1905), um Pál Ólafsson, Jón
Ólafsson, Þorstein Erlingsson, Hannes Hafstein o. fl. Enn skal
minnzt tveggja rita, er Þorsteinn Iét frá sér fara. Var annað
þeirra saga heimsstyrjaldarinnar fyrri, mikið rit, nál. 1000
hls., gefið út 1924 (Hcimsstijrjöldin). Eru þar dregnar saman
yfirlitsritgerðir úr „Lögréttu“ um styrjöldina og aukið við, og
er mikill fengur að eiga slíkt heildaryfirlit á íslenzku.
Hilt ritið er Þættir úr stjórnmálnsögu íslands árin 1890—
1918, og kom ril þetta út 1936. Þessir þættir eru tólf útvarps-
erindi, er Þorsteinn flutti. Bók j)essi er mikils virði fyrir ís-
lenzka stjórnmálasögu, því að öll þessi ár lifði og hrærðist
Þorsteinn i andrúinslofti stjórnmálanna, en tímabil þetta má
telja til merkustu tímabila í sögu þjóðarinnar, því að á þess-
um árum fengu íslendingar innlenda stjórn, viðurkenningu
fánans og loks viðurkenningu fullveldisins 1918, er leiddi til
lýðveldisstofnunarinnar 1944. Þorsteinn er orðinn nærri sjö-
tugur, er hann semur þessi erindi, og hefur fyrir löngu dregið
sig í hlé í stormviðri stjórnmálanna. Hann horfir lil baka
með rósemi hins aldraða manns og lýsir á hlutlægan hátt
átökum íslenzkra stjórnmálamanna eins og reyndur sagna-
ritari og er sanngjarn i dómum um ýmsa þá menn, er áður
fyrr voru harðskeyttir andstæðingar hans. Ýmis ný gögn
dregur hann og fram, m. a. um samningana við Dani 1918, er
áður voru ókunn.
Þorsteinn var maður jafnlyndur og hófsamur og skapstilltur
vel, og þótt Iiann stæði framarlega í orrahríð stjórnmálabar-
áttunnar um langt skeið og á ýmsu gengi í sókn og vörn flokk-
anna, var hann sáttfús og vinsæll meðal manna í öllum flokk-
um. Aljíingi veitti honum í viðurkenningarskyni rithöfundar-
laun, er hann hafði dregið sig í hlé frá ritstjórn „Morgun-
blaðsins", og hélt hann þeim til æviloka. Hann átti heimilis-
láni að fagna, kona hans, Þórunn Pálsdóttir, var honum sam-
hent, og eignuðust Jjau sex börn, fimm syni og eina dóttur.