Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1945, Page 68

Andvari - 01.01.1945, Page 68
64 Lýðveldishugvekja um íslenzkt mál ANDVAIU sú í samræmi við sögu þess og vora að skila því til eftirkom- endanna að fullnuðum þúsund árum, þeim er hófust 17. dag júnímánaðár árið 1944, minna breyttu en eftir þúsund árin, er enduðu sama dag, en miklum mun auðugra, tamdara, rækt- aðra, fágaðra og fullkomnara, svo að íslendingar, er lifa og minnast vor og feðra vorra á þjóðhátíðinni 17. dag júnímán- aðar árið 2944, eigi ekki erfiðara með að skilja ræðu fyrsta forseta íslands á lögbergi að Þingvöllum þenna dag í ár en vér til dæmis ræðu Einars Þveræings nú eða Hafursgrið, ef þau eru skilmerkilega iesin og skynsamlega flutt. Eftirmáli. Höfundi þessarar hugvekju er miklu geðfelldari skoðun ritstjóra „Fjölnis“, að meira skipti máli, hvað sagt er, en hver segi ]>að, heldur en hitt, er virðist vera álit nútimaritstjóra, að mestu varði, hver skrifi um eitthvað, en liitt litlu, hvað skrifað sé eða að hverju það miði. Hann liærir sig því ekki um að segja öðru visi til sín en með hálf-gildings-dulnefni, sem raunar er að nokltru leyti eiginlegt fangamark, en að öðru hversdagslegt gamansávarp sumra félaga hans, því að liann er að vísu meistari, þótt hann sé ekki lærdómsmeistari né boðberi nýrrar kcnningar (enda þótt hér sé vitanlega flutt kenning, eins og liugvekju byrjar að gera), lieldur iðnar- meistari. Honum er þvi betur lagið nú orðið að segja til, hvað gera skuli, og láta í té bendingar um það en vinna sjálft verkið í einstökum atriðum, —- vill ekki heldur trana sér meira en nauðsyn l>er til fram á verksvið lær- dómsmeistaranna. Nú er eftir það, er þeirra er og þá sérstaklega þeirra, sem leggja stund á íslenzk fræði, að leggja sitt fram og styðja þjóð vora með ráðum og dáð í því hinu sannasta menningai-máli hennar og brýnasta nauðsynjamálefni, er hér að framan hcfur verið nokkuð rætt u»>, með því að miðla henni af þekkingu sinni með nauðsynlegum leiðbeiningum og kærkominni fræðslu, og þeir geta verið vissir um einlægt þakklæti liennar, —- allra, sem það er meira en glamur með orð annarra, fleipur varanna og eftirát eitt, að íslendingar viljum vér allir vera. Meistari H. H.

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.