Andvari - 01.01.1945, Blaðsíða 22
18
Alexander Jóhannesson
ANDVAnl
liefur byrjað meðal blaðamanna. En hugsunarhátturinn var
hér að mörgu leyli öðruvísi þá, smásmuglegri, þrengri og kot-
hæjarlegri en nú, og á atvinnusamkeppni niilli blaðamanna
bar miklu meira þá, ineðan ritstjórarnir áttu hver sitt blað
.... Menn litu yfir liöfuð með meiri alvöru á hlaðaskammir
þá en nú.“
Blaðamannafélag var stofnað í Reykjavík 1897. Jón Ólafs-
son var formaður, Björn Jónsson gjaldkeri og Þorsteinn Gísla-
son ritari. Fundir blaðamannafélagsins voru í fyrstu lialdnir
í litlu herbergi í Iðnaðarmannahúsinu uppi. „Við komum þar
saman einu sinni í viku,“ segir Þorsteinn, „borðuðum þar
stundum, að minnsta kosti Björn, Jón og ég, drukkum ætíð
kaffi og spjölluðum saman, oft fram á nætur.“ Stundum sát-
um við þrír eftir, er aðrir fóru, Björn, Jón og ég. Þeir voru þá
kátir og lélcu á als oddi, og hafði ég mikið gaman af tali
þeirra.“
Óeining kom síðan upp í Blaðamannafélaginu, en ekki út af
pólitík fyrst, heldur út af stafsetningu, og varð úr fullur
fjandskapur milli sumra. Um þetta segir Þorsteinn:
„Stafsetningardeilan mikla kom ])á upp, og er mér það enn
með öllu óskiljanlegt, hve miklum hita og heift hún gat hleypt
í menn.“ Þorsteinn GísIasOn var um þessar mundir rekinn úr
Blaðamannafélaginu, af því að hann liafði aðra stafsetningu,
„þótt mér væri í raun og veru stafsetningarmálið ekkert kapps-
mál“. Sú stafsetning, sem Þorsteinn hafði á Lögréttu þá og
síðan, varð seinna löggilt skólastafsetning um skeið (lögfest
af Jóni Magnússyni).
Um hlöðin segir Þorsteinn enn fremur:
„Höfuðgallinn á þeim (þ. e. blöðunum) í heild sinni finnst
mér vera sá, að stjórnmálarifrildið tekur þar allt of mikið
rúm í hlutfalli við annað efni. Þótt blöðin séu orðin stærri
nú en áður, þá tekur þetta rifrildi nú upp hlutfallslega miklu
meira rúm en nolekru sinni áður og bægir frá öðru efni, sein
nytsamara gæti verið og hollara menningarlífi þjóðarinnar.
Maðurinn lifir ekki á einu saman hrauði, og sálir mannanna
þrífast illa á eintómu stjórnmálarifrildi og skömmum ár eftir