Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1945, Side 94

Andvari - 01.01.1945, Side 94
90 Þorkell Jóhannesson ANDVARI með nokkrum hætti, þ. e. af ónógu og óhollu viðurværi. Hér bættist svo við óskaplegt tjón á lcvikfénaði. Er talið, að þessi ár félli 28 þúsund hross, 11461 nautgripur og 190 488 sauð- kindur. Tölur þessar eru að sjálfsögðu ekki fullkomlega rétt- ar, en þó að líkindum nærri hófi. Svo sem um var getið nær upphafi jiessa máls, eru ekki lil áreiðanlegar skýrslur um kvik- fjártölu hér á landi fyrir harðindin. Hlutfallstölur um felli bú- penings, byggðar á meira eða minna áætlaðri tölu búfjárins fyrir harðindin, hafa því reyndar Htið gildi. Þó skal getið nokkurra slíkra talna, sem teknar eru samkvæmt skýrslum í riti C. U. D. Eggers. En samkvæmt því fórust 53% af öllum nautgripum, af sauðfé 83% og 72% af hrossum. Mest er sauð- fjártjónið talið í Skaftafells- og' Múlasýslum, 94%. Nautgripa- tjón var mest talið í Skagafjarðarsýslu, 89%, en hrossatjón mest í Mýrasýslu, 88%. Ýmsar frásagnir eru til um ógnir móðuharðindanna, um fólk, er vanmegnaðist úti á víðavangi og var urðað þar, um fjöldagrafir líkt og í hernaði eða svartadauða, um hæi, þar sem flest eða allt heimafólkið lá dautt í rúmum sínum, er að var komið, um harðýðgi manna við umferðafólk, en einnig um veglyndi og rausnarlega hjálpfýsi. Þess væri ærinn kostur að rekja hryllilegar frásagnir um „dauðavorið" 1784, en reynd- ar þarflaust. Til eru prentaðar frásagnir um þetta efni og mörgum kunnar. Um sannleiksgildi slíkra sagna, hverrar um sig, í einstökum atriðum, er oft vant að segja. Hitt er víst, að þvilík tíðindi gerast alltaf og alls staðar, þar sem lningursneyð geysar og hungursóttir. Hér skal aðeins bent á frásagnir hins ágæta fræðimanns Jónalans Þorlákssonar á Þórðarstöðum i Fnjóskadal, sem birtust í Blöndu VIII. I. 1944. Þær frásagnir munu í öllum meginatriðum sannar, og þótt þær sé bundnar við hinn forna Hálshrepp i Þingéyjarsýslu, gefa þær allglögga hugmynd um feyknir þessara ára almennt. Því að víst er, að Hku tor þá fram í ýmsum sveitum á Norður- og Austurlandi. En allra gleggsta og raunhæfasta mynd þessara neyðarára er að finna í ritum séra Jóns Steingrímssonar.

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.