Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1945, Page 33

Andvari - 01.01.1945, Page 33
ANDVARl Lýðveldishugvekja um íslenzkt mál 29 hvern fjörkipp, sem þjóð tekur, kemur hóglætistímabil. Þá hvilist hún uin sinn. Þá verður hún að gæta þess, að lífsstefna hennar missi ekki markmiðs. Hik, sem verður að efa um, hvort rétt sé stefnt, er örlagaþrungið. Efinn er fylgja óvissunnar og óvissan er böl, en það er þó hót við því böli, að efinn er spurull, leitar að endursvari, heimt- ar þekkingu á því, sem um er að velja. Mannlegu eðli er þann veg farið, að mjög örðugt er flestum að velja, ef um fleira en tvennt er að véla. Þetta er áskapað fyrir hið óumflýjanlega lögmál rökrænnar hugsunar, er allir heilbrigðir menn verða að hlíta, hvort sem þeir hafa nokkurn tíma litið í rökfræði eða ekki, en verða undir eins varir, ef þeir veita því einhvern tíma athygli, hvernig þeir liugsa sjálfir. hví er sagt, að „sá á kvölina, sem á völina“. Enn þá örðugra verður þetta, þegar hópur einstaklinga eða samheild, félag, sté11, þjóð, á að velja. Fjöldi getur ekki svarað öðru vísi en annaðhvort játandi eða neitandi. Þess vegna lendir til dæmis fólkstjórnarskipulagið oft svo mjög í handaskolum og víða, að fólk er neytt til þess vegna óhreinlegrar flolckaskiptingar að eiga um fleira en tvennt að velja. Fyrir þá sök verður að greiða svo vel úr málefnum, er leggja skal fyrir almenning til úr- skurðar, að loks sé ekki nema um tvennt að velja. Valið getur orðið fullörðugt samt, en nokkuð má þó auðvelda það enn með því að leggja það fvrir í andstæðum spurningum. t rræði eru því til á örlagastund. Svo er nú komið, þegar að er gáð með hliðsjón á því, sem framar hefur sagt verið, að fyrir oss íslendingum liggur að greiða skýlaus svör, jákvæð eða neikvæð, við tveimur and- stæðum spurningum, er skera úr um stefnuna í lífi þjóðar- •nnar og tilveru hennar um alla framtíð, ef þeim er af alvöru svarað. Þessar spurningar eru (mnaðhvort: Eigum vér að hætta að vera íslendingar? eðu: Eigum vér að halda áfram að vera íslendingar?

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.